Erlent

Vopnahléi komið á við Qudsaya í Sýrlandi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Fjölmiðlamiðstöð Aleppo (AMC) sendi frá sér þessa mynd af uppreisnarmanni að skjóta á stjórnar-hermenn á laugardag.
Fjölmiðlamiðstöð Aleppo (AMC) sendi frá sér þessa mynd af uppreisnarmanni að skjóta á stjórnar-hermenn á laugardag. Fréttablaðið/AP
Í fyrsta sinn í margar vikur verður hægt að koma matvælum til fólks í bænum Qudsaya nærri höfuðborg Sýrlands í kjölfar tilslakana sem náðust í samningum stjórnarhersins og uppreisnarmanna. Bærinn er á valdi uppreisnarmanna og hefur verið í herkví vikum saman.

Samkomulagið um vopnahlé við bæinn er gert á sama tíma og sýrlenska stjórnarandstaðan heldur fund í Istanbúl, höfuðborg Tyrklands, um hvort senda eigi fulltrúa á friðarráðstefnu sem Bandaríkin og Rússland reyna að koma saman í Genf fyrir lok þessa árs.

Stjórnarandstaðan hefur sett sem skilyrði fyrir þátttöku í friðarviðræðunum að Assad Sýrlandsforseti stígi til hliðar. Fulltrúar stjórnvalda í Sýrlandi segja hins vegar að Assad verði að minnsta kosti í embætti út kjörtímabilið, sem lýkur á næsta ári og að hann kunni að bjóða sig fram til endurkjörs.

Louay Safi, talsmaður Sambands stjórnarandstæðinga, segir viðræður halda áfram. „Til eru þeir sem hafa áhyggjur af því að undirbúningur hafi verið ónógur. Og svo eru þeir sem vilja taka ákvörðun, en að loknum ákveðnum undirbúningi,“ sagði hann við blaðamenn í Istanbúl.

Sjálfstætt fjölmiðlateymi aðgerðasinna í Qudsaya, hefur staðfest að vopnahléi hafi verið náð en litlar upplýsingar aðrar liggja fyrir. Fyrr í nóvember greindi hópurinn frá því að matvæli væru uppurin á mörkuðum bæjarins og að fátækustu íbúarnir byggju við sult.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×