Erlent

Tortryggnir gagnvart íslam

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Þriðjungur Dana vill takmarka rétt múslíma til að iðka trú sína opinberlega.
Þriðjungur Dana vill takmarka rétt múslíma til að iðka trú sína opinberlega. Nordicphotos/afp
Þriðji hver Dani er þeirrar skoðunar að takmarka eigi rétt múslíma til að iðka trú sína opinberlega. 29 prósent segja að banna eigi blæjur og slæður múslíma. Þetta eru niðurstöður könnunar á umburðarlyndi gagnvart innflytjendum sem gerð var við Háskólann í Árósum.

Aðstandendur rannsóknarinnar segja Dani ekki viðbúna fjölþjóðasamfélagi.

Þátttakendur í könnuninni voru 2.000 Danir á aldrinum 18 til 76 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×