Ljóshærðu börnin á Írlandi fengu aftur að fara heim Guðsteinn Bjarnason skrifar 25. október 2013 08:00 Sasha Ruseva er 35 ára rómakona í Búlgaríu. Hún segist hafa gefið dóttur sína frá sér nýfædda á Grikklandi árið 2009. fréttablaðið/AP Mynd/AP
Fréttir af ljóshærðri stúlku, sem fannst í síðustu viku í búðum rómafólks í Grikklandi, hafa farið hátt í fjölmiðlum síðustu dagana. Parið sem ól hana upp hefur verið ákært fyrir barnsrán, því DNA-rannsókn leiddi í ljós að þau væru ekki kynforeldrar hennar og þau gátu ekki gert skýra grein fyrir því, hvernig á því stóð að hún var í þeirra vörslu. Í gær fréttist svo af því að í Búlgaríu hafi 35 ára gömul kona borið kennsl á stúlkuna, sem nefnd hefur verið María, og segir hana dóttur sína. Talið er að hún hafi eignast barnið í Grikklandi árið 2009 og síðan gefið hana frá sér. „Ég gaf barnið mitt frá mér vegna þess að við vorum svöng,“ er haft eftir konunni í búlgörskum fjölmiðlum. Hún hefur nú verið handtekin í Búlgaríu, en lögreglan er að láta rannsaka hvort hún sé í raun kynmóðir stúlkunnar.Christos Salis og Elefþería Dimopúlú ásamt stúlkunni Maríu, sem þau eru grunuð um að hafa stolið.Mynd/APMálið hefur enn á ný vakið upp umræður um stöðu rómafólks, eða sígauna eins og áður tíðkaðist að nefna þennan þjóðfélagshóp. Ásakanir um fordóma hafa sprottið upp: Spurt hvort það breyti ekki öllu að stúlkan sé ljóshærð, og hvort barn, sem væri dökkt yfirlitum og fundist hefði við sömu aðstæður hefði fengið jafn mikla athygli í fjölmiðlum. Á móti er sagt að barnsrán sé alvarlegur glæpur, hvernig svo sem á það er litið, og engin afsökun að vera af þjóðfélagshópi sem er utangarðs og sætir fordómum. Fordómar virðast hins vegar leika ótvírætt hlutverk í svipuðum málum, sem komu upp á Írlandi í beinu framhaldi af fréttaflutningi af ljóshærðu stúlkunni á Grikklandi.mynd/apNágrannar rómafjölskyldu í Dublin höfðu samband við lögreglu til að láta vita af sjö ára gamalli ljóshærðri stúlku, sem bjó þar á heimili fjölskyldunnar. Lögreglan hélt á vettvang á mánudag, tók stúlkuna í sína vörslu og kom henni í tímabundið fóstur. Ekkert mark var tekið á því þótt hjónin, sem sögðust vera foreldrar stúlkunnar, hefðu reitt fram vegabréf hennar og fæðingarvottorð. Enginn var handtekinn, en í gær hafði DNA-rannsókn leitt í ljós að hún var í raun dóttir hjónanna, sem hún hafði búið hjá. Hún er nú komin aftur heim til sín. Systir hennar, sem er 18 ára, segir að fjölskyldan öll sé í áfalli. Hún sakar lögregluna um kynþáttafordóma.mynd/AP„Þeir tóku hana bara vegna þess að hún er með blá augu og ljóst hár. Flest rómafólk er með blá augu,“ er haft eftir henni á vefsíðu breska dagblaðsins The Telegraph. „Ég var ljóshærð þegar ég var lítil og mamma mín var ljóshærð þegar hún var lítil.“ Nákvæmlega þetta sama gerðist svo líka þegar tveggja ára drengur var tekinn frá föður sínum á þriðjudag annars staðar á Írland. DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að sá drengur er í raun sonur föður síns, og er hann nú kominn aftur heim til sín. Talið er að tíu til tólf milljónir rómafólks búi í Evrópulöndum. Víðast hvar mætir það tortryggni og jafnvel andúð, og sjálft er það sagt eiga sökina vegna lífshátta sinna. Rómafólk er utangarðs, býr við fátækt og takmarkaða skólagöngu, glæpatíðni er há og fjölskylduaðstæður oft erfiðar, ekki síst fyrir börn og konur.Þessi lífsmáti er hefð, sem þeir sjálfir halda fast í en eru einnig gagnrýndir fyrir. Stjórnvöld standa víðast hvar ráðþrota og virðast ekkert vita hvernig best sé að tryggja þessum þjóðfélagshópi sömu mannréttindi og öðrum. Víða hefur verið gengið hart fram gegn rómafólki. Frönsk stjórnvöld hafa til dæmis á síðustu árum vísað því úr landi í stórum stíl, og sætt nokkru ámæli fyrir.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Fleiri fréttir Skotið hafi verið á olíuflutningaskip á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira