Erlent

450 borgarar hafi fallið í drónaárásum

Þorgils Jónsson skrifar
Drónaárásir hafa vakið mikla reiði, meðal annars í Pakistan þar sem þessi mynd var tekin í síðasta mánuði.
Drónaárásir hafa vakið mikla reiði, meðal annars í Pakistan þar sem þessi mynd var tekin í síðasta mánuði. Nordicphotos/AFP
Flugskeytum er skotið úr fjarstýrðum loftförum sem þessum sem beitt hefur verið gegn hryðjuverkahópum. Samkvæmt frumdrögum skýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa þó 450 óbreyttir borgarar fallið í slíkum árásum.Fréttablaðið/AP
Um 450 óbreyttir borgarar eru taldir hafa fallið í 33 árásum ómannaðra loftfara, sem kallast gjarnan drónar, á vegum bandarískra stjórnvalda. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu um mannfall í drónaárásum sem verið er að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar.

Síðustu misseri hafa Bandaríkjamenn í síauknum mæli reitt sig á loftför þessi í baráttu við hryðjuverkamenn í Pakistan, Afganistan og Jemen. Þessi nálgun hefur enda reynst áhrifarík að því marki að tekist hefur að fella fjölmarga forvígismenn hryðjuverkahópa, ekki síst hópa sem tengjast al-Kaída hryðjuverkanetinu, án þess þó að hætta lífi hermanna.

Á móti kemur fyrrnefnt mannfall í hópi óbreyttra borgara, sem hefur valdið mikilli úlfúð í þeim ríkjum sem um ræðir. Meðal annars var þetta eitt af helstu kosningamálunum í þingkosningunum í Pakistan fyrr á árinu.

Bandaríkjastjórn hefur hingað til ekki viljað upplýsa um umfang eða fjölda aðgerða og ber við þjóðaröryggissjónarmiðum. Í skýrslunni segir meðal annars að þátttaka leyniþjónustunnar, CIA, í drónaverkefnum hafi skapað „nær óyfirstíganlegar hindranir í átt að gagnsæi“. Löndum sem stunda árásir með drónum, Bandaríkjunum, Bretlandi og Ísrael, beri skylda til að upplýsa um mannfall í árásum sínum og sýna fram á lagalega réttlætingu fyrir þeim.

Ben Emmerson, sem er aðalhöfundur skýrslunnar, segir slíkt ekki geta viðgengist til langframa og kallar eftir frekara gegnsæi af hálfu Bandaríkjamanna. Slíkt sé lykilatriði í því að fórnarlömbum slíkra árása gefist færi á að leita réttar síns.

Stjórnvöld í Pakistan hafa tjáð Sameinuðu þjóðunum að 400 óbreyttir borgarar hið minnsta hafi fallið í drónaárásum þar í landi frá árinu 2011, þrjátíu í Afganistan og 21 í Jemen.

Emmerson segir í skýrsludrögunum að árásirnar brjóti einnig gegn fullveldi Pakistans, þar sem stjórnvöld þar í landi hafa mótmælt þeim opinberlega.

Þetta þykir þó ekki svo einfalt, þar sem almennt er talið að sumar árásirnar hafi verið samþykktar af mönnum í efstu lögum stjórnkerfisins og hersins.

Fullkláruð skýrsla verður kynnt fyrir Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×