Erlent

Þriðja árásin á þremur dögum

Ómannað flugfar á flugvelli í Bandaríkjunum.
Ómannað flugfar á flugvelli í Bandaríkjunum. fréttablaðið/AP
Yfirmaður í her Jemens fullyrti í gær að þriðja árásin á jafnmörgum dögum hafi verið gerð úr ómönnuðu flugfari, svökölluðum dróna.

Þrír menn hafi látið lífið. Þeir séu allir grunaðir um aðild að hryðjuverkasamtökunum Al Kaída.

Þar með hafa 12 menn látið lífið í slíkum árásum í Jemen á síðustu dögum.

Talið er fullvíst að Bandaríkjamenn standi að þessum árásum, eins og öðrum loftárásum úr drónum undanfarin ár. Þær árásir hafa flestar verið gerðar í Pakistan.

Í byrjun vikunnar fullyrtu Bandaríkjamenn að veruleg hætta væri á að liðsmenn Al Kaída myndu gera árás á á bandarísk eða vestræn skotmörk á næstu dögum eða vikum.

Stjórnvöld í Jemen fullyrtu hins vegar á miðvikudag, að þeim hefði tekist að koma í veg fyrir árásir Al Kaída.

Bandarískir og breskir sendiráðsstarfsmenn hafa yfirgefið Jemen og margir ríkisborgarar þessara ríkja hafa einnig yfirgefið landið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×