Erlent

Assad sagður hafa sloppið

Assad Sýrlandsforseti á bænasamkomu Þetta er í þriðja skiptið á fáeinum vikum sem Assad kemur fram opinberlega.Fréttablaðið/AP
Assad Sýrlandsforseti á bænasamkomu Þetta er í þriðja skiptið á fáeinum vikum sem Assad kemur fram opinberlega.Fréttablaðið/AP
Sýrlensk stjórnvöld sögðu í gær ekkert hæft í fullyrðingum uppreisnarmanna um að þeir hefðu gert árás á bílalest Bashars al Assad forseta.

Uppreisnarmenn sögðust hafa gert árás á bílalestina í Malki-hverfinu í höfuðborginni Damaskus. Hann hefði verið þar á ferð til að taka þátt í bænastund í mosku í tilefni af Eid al fitr, lokahátíð föstumánaðarins ramadan.

Hvort sem Assad slapp ómeiddur eða ekki sýnir árásin fram á getu uppreisnarmanna til að ráðast á hverfið, en þar er bæði heimili og skrifstofa forsetans, ásamt nokkrum sendiráðum og fleiri mikilvægum byggingum.

Íbúar í hverfinu hafa staðfest að sprengjur hafi sprungið þar, þótt stjórnvöld segi þessar fréttir „algerlega tilhæfulausar og endurspegla ekkert annað en óskir og draumóra sumra fjölmiðla og þeirra stjórnvalda sem standa að baki þeim“.

Stjórnarhernum hefur undanfarið orðið nokkuð ágengt í að hrekja uppreisnarmenn frá útjöðrum höfuðborgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×