Ræktuðu mannseyra inni í rottu Þorgils Jónsson skrifar 31. júlí 2013 01:00 Eyrað sem um ræðir var ræktað úr frumum kúa og sauðfjár inni í líkama rottu. Mynd/AP
Hér má sjá eyra í ræktun hjá rannsóknarteyminu í Boston undir húð rottu.Mynd/AP Bandarískir vísindamenn hafa færst skrefi nær því að rækta nýtt eyra úr frumum sjúklinga, en samkvæmt frétt BBC, sem vitnar í nýlega fræðigrein, tókst vísindamönnunum í Boston að rækta nokkuð í líkingu við mannseyra úr frumum kúa og kinda. Ef allt fer að óskum gæti þessi tækni nýst til að gera nýtt ytra eyra fyrir fólk sem er með afmynduð eyru, eða hefur misst eyra af slysförum. Ferlið er þannig að lifandi frumur úr kúm og kindum var komið fyrir á lítilli vírgrind úr títani í laginu eins og mannseyra. Því var svo komið fyrir inni í líkama rottu þar sem það óx í tólf vikur, en ónæmiskerfi rottunnar hafði áður verið gert óvirkt svo að líkami hennar myndi ekki hafna eyranu sem aðskotahlut. Dr. Thomas Cervantes, sem fór fyrir teyminu fagnaði niðurstöðunum sem hann sagði marka tímamót. „Í fyrsta lagi tókst okkur að láta eyrað halda lögun sinni meðan það óx í tólf vikur inni í rottunni og auk þess tókst okkur að viðhalda sveigjanleika brjósksins.“ Cervantes sagði að næsta skref væri að gera tilraunir á fólki, en sennilega væru um fimm ár í það það gerðist. Líffæraframleiðsla af þessu tagi er afar vaxandi grein innan læknisfræðinnar, en meðal annars hafa stofnfrumur verið notaðar til að græða barka í fólk, og nýra sem var búið til á rannsóknastofu og grætt í rottu, hefur gefið góða raun og virkað sem skildi.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira