Kata er hinn fullkomni fyrirliði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2013 07:00 fjórir fyrirliðar Elísa, Guðbjörg, Dóra María og Sif eru allar í ábyrgðarstöðum í sínum félagsliðum. fréttablaðið/óskaró
Katrín Jónsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir eru fyrirliðar íslenska kvennalandsliðsins sem nú stendur í stórræðum á EM í Svíþjóð. Það leynast líka fleiri fyrirliðar í hópnum því fjórir leikmanna íslenska landsliðsins eru fyrirliðar sinna félagsliða. Fréttablaðið hitti fyrirliðana fjóra og spurði út í fyrirliðastarfið. Tvær þeirra eru fyrirliðar hjá atvinnumannaliðum (Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sif Atladóttir) en hinar tvær (Dóra María Lárusdóttir og Elísa Viðarsdóttir) eru fyrirliðar liða sinna í Pepsi-deildinni. „Ég hef kannski ákveðinn karakter sem leiðir liðið áfram með öskrum eða baráttu,“ segir Sif, fyrirliði Kristianstad, en „undirmenn“ hennar þar eru til að mynda tveir sænskir landsliðsmenn og einn danskur, auk Margrétar Láru Viðarsdóttur og Guðnýjar Bjarkar Óðinsdóttur. „Rakel Logadóttir er alltaf svo mikið meidd þannig að þetta er mitt hlutverk hjá Val. Það þarf að vera einhver í liðinu sem nær til allra og fólk treystir. Ég er kannski ekki mikill öskrari en stelpurnar geta leitað til mín,“ segir Dóra María, sem er hjá Val.Ég skil alla í liðinu „Kannski eru töluð fleiri tungumál núna en oft áður og það hentar vel að ég tala sænsku, ensku og norsku. Ég skil allavega alla í liðinu,“ sagði Guðbjörg, sem fékk fyrirliðabandið á arminn í fyrsta leik sínum með Avaldsnes í norsku úrvalsdeildinni. „Við erum með ungt lið í Eyjum og ég er kannski ein af þeim sem eru búnar að vera hvað lengst. Ég er fæddur og uppalinn Eyjamaður og það er flott að hafa Eyjamann í þessu hlutverki,“ sagði Elísa Viðarsdóttir en þrátt fyrir að vera bara 22 ára hefur hún verið fyrirliði ÍBV í þrjú ár. „Þetta ýtir manni kannski út í það að taka virkilega meiri ábyrgð en ég veit samt ekki hvort þetta breytir miklu fyrir mig því markvörðurinn er vanur að stjórna vörninni,“ segir Guðbjörg. „Ég er kannski meðvitaðri um það að ég sé fyrirmynd og megi ekki gera neina vitleysu,“ segir Dóra María í léttum tón. „Ég er í þessari stöðu af því að ég er leikmaðurinn sem ég er og þetta breytir mér held ég ekki mikið. Það fylgir þessu samt að hugsa meira um heildina og allan hópinn. Maður er kannski að hjálpa þeim yngri meira og grípur inn í þegar það kemur einhver ágreiningur upp,“ segir Sif. Dóra María skýtur þá inn í: „Svo má ekki gleyma því að maður er á stífum aukaæfingum í að æfa uppköstin,“ segir Dóra og allur hópurinn hlær en fyrirliðar hittast alltaf hjá dómara leiksins fyrir leik.Geislar af Kötu sem fyrirliðaÞær hrósa allar fyrirliða íslenska landsliðsins, Katrínu Jónsdóttur, sem hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin sex ár. „Kata er frábær leiðtogi og hún hefur sýnt það og sannað í gegnum árin. Hún er fyrst og fremst leiðtogi inni á vellinum. Við lítum allar upp til hennar,“ segir Sif um Katrínu. „Kata er hinn fullkomni fyrirliði. Hún er yfirveguð þegar þess þarf, mjög diplómatísk í öllum sínum aðgerðum og mikill leiðtogi,“ bætir Dóra við. „Ég er sammála stelpunum. Það geislar af Kötu sem fyrirliða. Hún mun aldrei gefast upp og dregur liðið með sér,“ segir Guðbjörg en Elísa hefur kannski minnsta reynslu af Katrínu. „Allan tímann sem ég hef verið með hópnum þá hef ég litið mikið upp til Kötu. Hún er frábær fyrirliði eins og stelpurnar segja,“ sagði Elísa. Sara Björk Gunnarsdóttir hefur einnig borið fyrirliðabandið í nokkrum leikjum hjá LdB FC Malmö á þessu tímabili eða þegar fyrirliðinn Malin Levenstad er ekki með. Katrín Jónsdóttir er á sínu fyrsta ári hjá Umeå og lék áður með Djurgården. Hún var fyrirliði Valsliðsins í mörg ár áður en hún fór aftur út í atvinnumennsku.
Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn Arsenal - Manchester City | Barist um Samfélagsskjöldinn Enski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Körfubolti Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Fleiri fréttir Linda Líf með mark í stórsigri Kristianstad Kolbeinn lagði upp jöfnunarmarkið í ótrúlegu 5-5 jafntefli Hjörtur og Kolbeinn máttu þola stórt tap gegn Degerfors Arsenal - Manchester City | Barist um Samfélagsskjöldinn Brynjólfur skoraði þegar Groningen vann stórsigur Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels Hafrún skoraði í öruggum sigri The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Glódís Perla lyfti bikar í þriðja sinn á árinu 2026 Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Hlín opnaði markareikninginn hjá Malmö með tvennu Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Thelma Karen með mark í stórsigri Häcken Fastir í þriðja gír og bitlausir Fullkomin byrjun hjá Emelíu og Köge Ferran Torres gengur til liðs við PSG Sjá meira