Brátt sér fyrir endann á máli Mannings Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. júlí 2013 07:00 Bradley Manning í fylgd hermanna við upphaf réttarhaldanna í byrjun júní. Nordicphotos/AFP
Vitnaleiðslum í máli Bandaríkjastjórnar gegn hermanninum Bradley Manning lauk í síðustu viku. Lokamálflutningur saksóknara hefst í dag og síðar taka verjendur við. Manning lak til fjölmiðla leyniskjölum frá bandarískum stjórnvöldum og bandaríska hernum. Hann hefur nú setið nærri þrjú ár í fangelsi, en sjálf réttarhöldin hófust ekki fyrr en í byrjun júní á þessu ári. Mannréttindasamtökin Amnesty International sendu fyrir helgi frá sér yfirlýsingu þar sem þess var krafist að bandarísk stjórnvöldum féllu frá ákæru um að Manning hefði „aðstoðað óvininn“. Sú ákæra hefði í för með sér þyngstu refsinguna af öllum 22 ákæruliðum málsins, jafnvel dauðarefsingu. Strax í febrúar játaði Manning sekt í tíu af þessum 22 ákæruliðum, og á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi fyrir þau brot. Réttarhöldin snúast um hina 12 ákæruliðina, sem Manning segist saklaus af. „Málsrök stjórnvalda fyrir aðstoð við óvininn eru fáránleg, og það kemur ekki á óvart,“ sagði Widney Brown hjá Amnesty International eftir að vitnaleiðslum var lokið. „Það sem kemur á óvart er að saksóknarar í máli þessu, sem hafa þá skyldu að vinna að framgangi réttlætisins, hafa talað fyrir þeirri kenningu að það að gera upplýsingar aðgengilegar á Internetinu – hvort sem það er fyrir tilstilli Wikileaks, á persónulegri bloggsíðu eða á vefsíðu The New York Times – geti talist aðstoð við óvininn.“ Í tilkynningu frá samtökunum segir að til þess að Bandaríkjastjórn geti sannað að Manning hafi í reynd veitt „óvini Bandaríkjanna“ aðstoð þurfi þau að sýna fram á að hann hafi afhent tilgreindum óvini tilteknar upplýsingar sem gætu reynst skaðlegar Bandaríkjunum. Og þetta hafi hann þurft að gera vísvitandi, eða með „illt í huga“ eins og dómarinn í málinu hefur orðað það. Lokavitni verjenda í málinu, lagaprófessorinn Yochai Benkler við Harvard-háskóla, sagði að með því að afhenda uppljóstrunarsíðunni Wikileaks mikið magn leynigagna hefði Manning innt af hendi fullkomlega löglegt og mikilvægt verk í þágu blaðamennsku við að upplýsa almenning.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira