"Í lýðræðisríkjum hefur starfsemi leyniþjónustustofnana alltaf verið ómissandi fyrir öryggi borgaranna" Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. júlí 2013 23:30 Þýskalandskanslari hefur dregið að tjá sig um njósnahneykslið.
Angela Merkel Þýskalandskanslari kemur Bandaríkjamönnum til varnar í viðtali við þýska vikuritið Die Zeit, og segir njósnir nauðsynlegar og óhjákvæmilegar fyrir öryggi hvers ríkis. Þetta er í fyrsta sinn sem hún tjáir sig um víðtæka njósnastarfsemi Bandaríkjanna og fleiri lýðræðisríkja, sem nú eru á hvers manns vitorði eftir að Edward Snowden ljóstraði upp um þær. Hún hefur þó þann fyrirvara að enn eigi eftir að koma í ljós hversu víðtækar njósnir Bandaríkjamanna eru. Ör tækniþróun valdi því að sífellt þurfi að endurmeta jafnvægið milli frelsis einstaklinganna og þarfa ríkisins. Sjálf ólst Merkel upp í Austur-Þýskalandi, þar sem leynilögreglan STASI fylgdist grannt með hverri hreyfingu borgaranna. Hún vísar því algerlega á bug að njósnir bandarísku Þjóðaröryggisstofnunarinnar séu sambærilegar starfsemi austurþýsku STASI-löggunnar. „Þetta er tvennt algerlega ólíkt og samanburður af þessu tagi hefur ekkert annað í för með sér en að gera lítið úr þeim skaða sem STASI olli borgurum Austur-Þýskalands. Í lýðræðisríkjum hefur starfsemi leyniþjónustustofnana alltaf verið ómissandi fyrir öryggi borgaranna og verður það einnig til framtíðar. Ríki án leyniþjónustustarfsemi væri of berskjaldað.“ Ýmis Evrópuríki hafa harðlega gagnrýnt víðtækt eftirlitskerfi Bandaríkjanna, sem skráir og geymir ítarlegar upplýsingar um síma- og netsamskipti fólks, ekki aðeins innan heldur einnig utan Bandaríkjanna. Francois Hollande Frakklandsforseti krafðist þess að Bandaríkin hættu þegar í stað þessu „snuðri“, en ráðamenn í Bandaríkjunum hafa gert lítið úr þessum ásökunum og segja Evrópuríki stunda sambærilegt eftirlit.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás Sjá meira