Króatía er komin í Evrópusambandið Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. júlí 2013 08:00 Króatar horfa fram á ýmsar breytingar nú þegar aðildin að ESB er orðin að veruleika. nordicphotos/AFP
Þúsundir manna tóku þátt í hátíðarhöldum víðs vegar um Króatíu í gær til að fagna Evrópusambandsaðild, sem varð að veruleika á miðnætti. Ivo Jospovic Króatíuforseti segir hátíðarhöldin vera hófleg vegna þess að efnahagsástandið í landinu sé enn mjög erfitt. „Við þurfum að þróa efnahaginn og hugsa um þau sem eru atvinnulaus núna. Það er hvorki tími né peningar til þess að standa í miklum hátíðarhöldum,“ sagði hann í viðtali við AP-fréttastofuna. Martin Schulz, forseti Evrópuþingsins, sagði aðild Króatíu engu að síður vera sögulega: „Aðild að ESB er engin töfralausn við vandanum,“ sagði hann í yfirlýsingu. „En hún mun hjálpa mörgum við að komast út úr fátækt og nútímavæða efnahagslífið.“ Króatía getur ekki fengið aðstoð úr neyðarsjóðum evruríkjanna, því landið fær ekki aðild að evrusvæðinu fyrr en efnahagsleg skilyrði til þess hafa verið uppfyllt. Króatískir andstæðingar ESB efndu til mótmælafundar í gærkvöld en stuðningsmenn aðildar segja aðildina hafa verið nauðsynlega. Margir geti nú fengið vinnu handan landamæranna í betur stæðum ESB-ríkjum. Búast megi við að erlend fjárfesting aukist og vonir eru bundnar við að ESB geti hjálpað til við að halda spillingu í skefjum innan stjórnkerfisins. Aðildarríki ESB eru nú 28 talsins og íbúum þeirra hefur fjölgað úr 502,4 milljónum í 506,8 milljónir.
Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fleiri fréttir Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Sjá meira