Obama sendir hergögn til uppreisnarhópa í Sýrlandi Nanna Elísa skrifar 15. júní 2013 09:00 Sýrlenskir uppreisnarhópar þiggja hernaðaraðstoð frá Bandaríkjamönnum. Sameinuðu þjóðirnar segja 93.000 manns hafa látið lífið í borgarastyrjöldinni.
Bandaríkin Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að veita uppreisnarhópum í Sýrlandi beina hernaðaraðstoð þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar sínar um að gera það ekki. Markar þetta stefnubreytingu í þátttöku Bandaríkjamanna í borgarastyrjöldinni, sem hefur staðið í 2 ár, en þeir halda því fram að þeir hafi áreiðanlegar heimildir fyrir því að efnavopnum hafi verið beitt af sýrlenskum stjórnvöldum og valdið dauða 100 til 150 manns. Barack Obama segir þessa beitingu efnavopna hafa gerbreytt stefnu sinni en bandarísk stjórnvöld höfðu áður aðeins veitt sýrlenskum uppreisnarmönnum aðstoð í formi herþjálfunar og sent til þeirra mat- og lyfjabirgðir. Sýrlensk stjórnvöld sendu frá sér yfirlýsingu á föstudag þar sem kom fram að ásakanir bandarískra stjórnvalda væru byggðar á lygum og var því haldið fram að Obama notaði ósannar upplýsingar í því skyni að réttlæta hernaðaraðstoðina. Rússnesk stjórnvöld taka í sama streng en Yuri Ushakov, aðstoðamaður Putin í utanríkismálum, segir gögn bandarískra stjórnvalda ekki sannfærandi. Hann segir jafnframt að hernaðaraðstoð sem þessi gæti haft neikvæð áhrif á tilraunir til friðarviðræðna milli hinna stríðandi fylkinga. Sameinuðu þjóðirnar sögðu fyrr í vikunni að 93.000 manns hefðu nú látist í borgarastyrjöldinni.
Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Sjá meira