Biðja fyrir heilsu Mandela 11. júní 2013 04:00 Fyrrverandi forseti Suður-Afríku og Nóbelsverðlaunahafi berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Pretoríu. nordicphotos/afp AFP/NordicPhotos
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, dvelur illa haldinn á sjúkrahúsi í Pretoríu, höfuðborg landsins. Samkvæmt stjórnvöldum þar í landi er ástand hans stöðugt. Mandela, sem er 94 ára, var færður á sjúkrahús snemma á laugardag vegna síendurtekinnar sýkingar í lungum. Seinna þann sama dag kom fram í yfirlýsingu frá stjórnvöldum að ástandið væri alvarlegt. Eftir það heyrðist ekkert varðandi líðan Mandela fyrr en í gærmorgun. „Ástand hans er óbreytt,“ segir í stuttri yfirlýsingu Jakobs Zuma forseta. Zuma ítrekar beiðni sína til landsmanna um að biðja fyrir Mandela og fjölskyldu hans. Ættingjar Mandela heimsóttu hann á sjúkrahúsið á sunnudag. Dóttir hans, Zlenani Dlamini, sendiherra Suður-Afríku í Argentínu, flaug til föðurlands síns til þess að vera með föður sínum. Mandela hefur verið lagður inn á sjúkrahús nokkrum sinnum á undanförnum mánuðum. Á sama tíma og þjóðin liggur á bæn spyrja fjölmiðlar í landinu sig hvort ekki sé kominn tími á að leyfa Mandela að fara. Náinn vinur hans, Andrew Mlangeni, sagði í viðtali við fjölmiðla að nú gæti þjóðin þurft að kveðja sinn dáða fyrrverandi þjóðarleiðtoga. „Þú hefur verið lagður inn á sjúkrahús of oft. Það er augljóst að þú ert ekki heill og það er mögulegt að þú verðir aldrei heill á ný,“ sagði Mlangeni. „Þegar fjölskyldan leyfir honum að fara, mun þjóðin fylgja. Við komum til með að segja þakka þér Guð, þú hefur gefið okkur þennan mann og við sleppum nú af honum takinu.“- ne
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira