Ástand heimsins í nokkrum myndum Óli Kristján Ármannsson skrifar skrifar 6. júní 2013 13:15 Maður fær sér lúr á Taksim-torgi í Istanbúl nærri veggspjaldi þar sem Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra landsins, er sýndur í gervi Hitlers. Í landinu halda áfram mótmæli þar sem krafist er aukins frjálsræðis, en þeim hafa stjórnvöld mætt af mikilli hörku. Nordicphotos/AFP
Víða um heim er ófremdarástand. Í Tyrklandi er slegist og í Mið-Evrópu eru mikil flóð sem plaga fólk. Hér má sjá nokkrar myndir sem gefa örlitla nasasjón af ástandi heimsins eins og það var í gær. Stuðningsmenn Janez Jansa, fyrrverandi forsætisráðherra Slóveníu, komu saman fyrir utan dómhúsið í Ljubljana þar sem Jansa var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hann var fundinn sekur um að hafa bæði greitt og þegið mútur í stærsta varnarsamningi sem landið hefur gert. Keypt voru brynvarin farartæki frá finnska hergagnafyrirtækinu Patria.Nordicphotos/AFP Ísraelskir hermenn standa vörð vegna átaka við palestínska mótmælendur við Ofer-fangelsið ísraelska í Betúníu, nærri Ramallah á Vesturbakkanum. Mótmælendur minnast „Naksa“ (afturfararinnar), þegar Ísrael hertók Vesturbakkann og Gasa fyrir 46 árum í Sex daga stríðinu.Nordicphotos/AFP Íbúar reyna að bjarga bíl úr umflotnum bílskúr í Dresden í austanverðu Þýskalandi þar sem áin Saxelfur rennur. Stjórnvöld ætla að setja 100 milljónir evra í neyðaraðstoð vegna flóða sem þegar hafa orðið ellefu að bana og hrakið tugþúsundir frá heimilum sínum í Mið-Evrópu.Nordicphotos/AFP Í þorpinu Luni í héraðinu Mundra Taluka sýnir Hirenbhai Bheda stoltur veggklukku sem gengur fyrir rafmagni sem fengið er úr kúahlandi. Orkuframleiðslan er hluti af tilraunaverkefni góðgerðasjóðsins Shree Vardhman Jivdaya Kendra, sem rekur stórt kúabú. Hlandið í krúsunum tveimur á að geta látið klukkuna ganga í tæpan mánuð.Nordicphotos/AFP Sonur fangelsuðu konunnar Yorm Bopha og fólk frá þorpinu Boeung Kak kalla eftir því að hún verði leyst úr fangelsi fyrir utan áfrýjunarréttinn í Phnom Penh í gær. Bopha, sem barðist fyrir landréttindum á svæðinu, var í desember dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa átt þátt í að berja tvo karla. Mótmælendurnir segja ásakanir á hendur henni hafa verið uppspuna til að þagga niður í henni.Nordicphotos/AFP
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira