Söfnuðu símagögnum tugmilljóna notenda Þorgils Jónsson skrifar 6. júní 2013 10:00 Breska blaðið Guardian fletti ofan af heimildum Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna til þess að afla gagna um símtöl tugmilljóna viðskiptavina Verizon-símafyrirtækisins. NordicPhotos/AFP
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) hefur undanfarnar vikur safnað gögnum frá milljónum notenda Verizon símafyrirtækisins. Í frétt Guardian segir að gagnasöfnun þessi sé á grundvelli leynilegarar heimildar sem byggir á hinum svokölluðu föðurlandsvinalögum, sem sett voru í kjölfar árásanna 11. septemb er 2001, til að berjast gegn hryðjuverkum. Samkvæmt umræddri heimild er Verizon gert að afhenda NSA upplýsingar um öll símtöl innan kerfis fyritækisins frá 25 apríl fram til 19. júlí. Þar er um að ræða upplýsingar um númer beggja aðila, staðsetningu, tímasetningu og lengd símtalanna, en ekki um hvað notendum fór á milli. Ekki hefur áður frést af jafn víðtækri heimild til eftirlits, en Verizon telur rúmlega 120 milljónir viðskiptavina. Jafnan takmarkaðast heimildir við einstaklinga eða hópa sem grunaðir eru um að starfa með hryðjuverkahópum eða á vegum erlends ríkis. Þetta er í fyrsta sinn sem upp kemst um svo víðtækar aðgerðir undir stjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta, en á valdatíð George W. Bush stundaði NSA símhleranir án réttarheimilda, og vakti það mikla óánægju. Ekkert hefur enn komið í ljós um ástæður þess að þörf þótti á að fylgjast með þessum mikla fjölda. Talsmenn Verizon hafa ekki viljað tjá sig um málið, frekar en talsmenn NSA eða Hvíta hússins.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Sjá meira