Enski boltinn

Sanchez: Enskir leikmenn eru dekraðir og fá allt upp í hendurnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alexis Sanchez
Alexis Sanchez nordicphotos/getty
Alexis Sanchez, leikmaður Barcelona og Síle, telur að enska landsliðið eigi ekki eftir að standa sig vel á alþjóðlegum vettvangi um næstu misseri af þeirri ástæðu að leikmenn liðsins eru dekraðir og fá allt upp í hendurnar.

Þessi 24 ára framherji verður með Síle í vináttuleik gegn Englendingum á föstudagskvöldið en enska landsliðið hefur nú þegar tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári.

„Okkar leikmann eru mun harðari en þeir ensku,“ sagði Sanchez.

„Vandamálið hjá enskum leikmönnum er að þeir fá allt upp í hendurnar. Þeir fara í einhverjar knattspyrnuakademíur um tíu ára aldur og þurfa eftir það að hafa minna fyrir hlutunum en til að mynda leikmenn frá Síle.“

„Ég þurfti að þvo bíla þegar ég var ungur bara til að geta keypt mér takkaskó. Ungir enskir leikmenn fá skó frá félögunum og þurfa að hafa lítið fyrir hlutunum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×