Hundruð hafa þurft að flýja heimili sín 24. maí 2013 00:00 allt á floti Gríðarleg eyðilegging hefur orðið í Hvammi vegna flóða og aurskriða. Nánast allir íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín. nordicphotos/afp
Hundruð manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóða og aurskriða í Noregi undanfarna sólarhringa. Einn maður hefur fundist látinn á flóðasvæðinu en ekki er vitað hvernig hann lést. Ljóst er að tjón af er mikið. Ekkert lát er á rigningu en vandræðin eru að færast til vesturs. Ástandið hefur orðið einna verst í Hvammi í Guðbrandsdal, þar sem nær allir íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín og aurskriður féllu á þó nokkur hús. Jens Stoltenberg forsætisráðherra fór til svæðisins í gærkvöldi til að sýna stuðning sinn í verki. Þar var haldinn upplýsingafundur fyrir íbúana. Þrátt fyrir að veðrinu eigi að slota í dag munu fleiri stærri ár flæða yfir bakka sína að mati sérfræðinga. Þær eru seinni að bregðast við rigningu en litlar ár. Samgöngur eru í uppnámi í landinu og fjöldi vega fór í sundur eða er ónothæfur af öðrum sökum. Lestarteinar hafa líka rofnað. Helstu leiðir á milli Óslóar og Þrándheims lokuðust í allan gærdag. Starfsmenn vegagerðar sögðu við norska fjölmiðla í gær að ekki væri hægt að lofa neinu um opnun vega og að ástandið breyttist nánast á hverri mínútu. Mannabeinum skolaði upp eftir flóðin, en þau voru í gömlum kirkjugarði við kirkju í Listad, sem stóð til ársins 1780. Beinin dreifðust meðal annars yfir vegi og stóð til að hefja hreinsun í gær. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Sjá meira