Erlent

Aldrei sneggri við andlitságræðslu

nýtt andlit Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur en spítalinn sendi fjölmiðlum þessa mynd í gær. fréttablaðið/ap
nýtt andlit Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur en spítalinn sendi fjölmiðlum þessa mynd í gær. fréttablaðið/ap

33 ára gamall Pólverji fékk grætt á sig nýtt andlit aðeins þremur vikum eftir að hann lenti í alvarlegu vinnuslysi sem eyðilagði andlit hans. Aldrei mun hafa liðið svo skammur tími milli slyss og ágræðslu á andliti. Venjulega tekur mánuði eða ár að undirbúa svo umfangsmiklar aðgerðir eins og andlitságræðslu.

Læknar sögðu hins vegar að ástandi mannsins hefði hrakað svo hratt að ágræðsla hafi verið eina batavonin. Hann gat hvorki andað né nærst sjálfur vegna skemmda á munni og beinum.

Aðgerðin var gerð 15. maí og tók 27 klukkustundir. „Við gerum ráð fyrir því að aðgerðin geri sjúklingnum kleift að eiga eðlilegt líf á ný,“ sagði skurðlæknirinn Adam Maciejewski um batahorfurnar. Þó er enn mikil hætta á að hann fái sýkingar, og er hann því í einangrun.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×