Erlent

Argast í Google vegna skatta

Svavar Hávarðsson skrifar
Skattamál stórfyrirtækja eru víða til athugunar. fréttablaðið/ap
Skattamál stórfyrirtækja eru víða til athugunar. fréttablaðið/ap Mynd/AP

Forsvarsmenn tæknirisans Google sátu undir harðri gagnrýni breska þingsins í gær vegna skattamála fyrirtækisins.

Fullyrt var að fyrirtækið spilaði með regluverk skattamála til að forðast greiðslur í sameiginlega sjóði Breta.

Fyrir breskri þingnefnd fullyrti aðstoðarforstjóri Google, Matt Brittin, að fyrirtækið færi að lögum í stóru sem smáu. Google er aðeins eitt þeirra stórfyrirtækja sem hafa legið undir ámæli vegna skattamála.

Í þeim hópi eru Amazon, Facebook og Starbucks. Google hefur undanfarin ár greitt 0,1% af tugmilljarða veltu í skatta í landinu, segir í frétt AP.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×