Taka höndum saman gegn Norður-Kóreu 15. apríl 2013 14:30 John Kerry ferðaðist um Asíu um helgina og heimsótti Suður-Kóreu, Kína og Japan þar sem hann hélt blaðamannafund með Fumio Kishida, utanríkisráðherra Japan. Nordicphotos/AFP
John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Norður-Kóreumenn vera að einangra sig enn frekar með kjarnorkuhótunum sínum. Kerry ferðaðist um Asíu um helgina og ræddi við leiðtoga nágrannaríkja Norður-Kóreu um ástandið sem skapast hefur. „Bandaríkin munu verja bandamenn sína eins og nauðsynlegt þykir gegn þessum árásum. Okkar fyrsta val er hins vegar að ræða saman,“ sagði Kerry á fréttamannafundi í Tókýó með Fumio Kishida, utanríkisráðherra Japan, í gær. Þar sagði hann jafnframt að mikilvægt væri fyrir Norður-Kóreu að skilja hvaða afleiðingar hótanir þeirra munu hafa fyrir þá sjálfa. Stjórnvöld í Seúl, Peking, Tókýó og Washington hafa, að sögn Kerry, tekið höndum saman gegn Norður-Kóreu og er markmiðið kjarnorkuafvopnun á Kóreuskaga. Norður-Kórea hefur stöðugt hótað kjarnorkuárásum á valin skotmörk í Suður-Kóreu og á meginlandi Norður-Ameríku síðan Sameinuðu þjóðirnar hertu viðskiptaþvinganir sínar á landið. Stjórnvöld í Pjongjang hafa svo talið heræfingar Suður-Kóreu og Bandaríkjanna sunnan landamæranna á Kóreuskaga vera stríðsundirbúning og þannig réttlætt endurlífgaða kjarnorkuáætlun sína. Þrátt fyrir hótanirnar telja sérfræðingar ólíklegt að Norður-Kórea sendi kjarnorkuflaugar af stað. Þá er talið að eldflaugar þeirra dragi ekki nógu langt til að geta grandað skotmörkum í Bandaríkjunum, ef Alaska er undanskilin.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira