Erlent

Skutu á klúbbhús Bandidos

Þorgils Jónsson skrifar
Klíkudeilur Talið er að önnur glæpaklíka hafi skotið á klúbbhús Bandidos í Hvidovre í fyrrinótt.
Klíkudeilur Talið er að önnur glæpaklíka hafi skotið á klúbbhús Bandidos í Hvidovre í fyrrinótt.
Byssumenn skutu fimmtán til tuttugu skotum að húsnæði Bandidos glæpasamtakanna í Hvidovre í Kaupmannahöfn í fyrrinótt. Engan sakaði en ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Ekstra Bladet segir málið tengjast deilum við aðra klíku og hefur eftir meðlimi í klíkunni Brothas að árásin tengist því að Bandidos hafi reynt að fá meðlimi úr klíkunni Brothas til liðs við sig.

Bandidos treður þó einnig illsakir við fleiri glæpaklíkur, til dæmis Black Cobra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×