Myndband af slysinu á Spáni Jakob Bjarnar skrifar 25. júlí 2013 12:30
Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir á Spáni eftir að 77 manns fórust þegar farþegalest fór út af sporinu nærri Santiago de Compostela í norðvesturhluta landsins í gærkvöldi. Þetta er versta lestarslys á Spáni í yfir 40 ár. Lestin var á hraðleið frá Madrid til hafnarborgarinnar Ferrol þegar alls 8 vagnar hennar fóru út af sporinu í beygju um 3 kílómetrum utan við Santiago de Compostela. Á vefsíðu fréttamiðilsins El Mundo kemur fram að lestin hafi verið á 190 km hraða en þarna er hámarkshraði 80 kílómetrar á klukkustund. Eftir að vagnarnir fóru út af sporinu hlóðust þeir upp hver af öðrum. Fréttaritari CNN, Ivetta Rubiera Cabrera, sem var komin á vettvang áður en lögreglu bar að, sagði þetta hroðalega aðkomu og fann hún enga líkingu aðra en þá að þetta væri eins og í stórslysamynd frá Hollywood. Jakobo Rodriguez, íbúi í Santiago de Compostela, var í áfalli þegar Reuters ræddi við hann í gærkvöldi. Rodriguez segir þetta hafa verið skelfilegt að upplifa. „Íbúar þessa friðsæla bæjar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið, hvort um var að ræða árás á bæinn eða hvað? Og það sem var svo til þess fallið að auka á áfallið er að fyrir dyrum stóð bæjarhátíð, fiesta, í Santiago de Compostella en undirbúningur fyrir hátíðina stóð sem hæst þegar slysið varð.“ Björgunarmenn unnu á vettvangi slyssins í alla nótt og hafa 74 lík hafa fundist en 4 létust á sjúkrahúsi. Yfir 140 manns liggja slasaðir á sjúkrahúsum. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, sem er fæddur í Santiago de Compostela er nú mættur á slysstað eftir neyðarfund ríkisstjórnarinnar, sem hann boðaði til þá er hann frétti af slysinu. Eins og Jakobo Rodriquez kom inná stóð til að halda stærstu pílagrímshátíð Santiago de Compostela í dag og er von á þúsundum kristinna pílagríma til borgarinnar. Hátíðarhöldum hefur verið aflýst vegna slyssins. Spænska lestarkerfið hefur almennt verið talið fremur öruggt og hefur miklum fjármunum verið varið í uppbyggingu þess.
Mest lesið „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Fleiri fréttir Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Sjá meira