Persónunjósnirnar nauðsynlegar í öryggisskyni Jóhannes Stefánsson skrifar 9. júní 2013 12:12 Barack Obama hefur þótt umdeildur á kjörtímabilinu. Mynd/ AFP
Barack Obama bandaríkjaforseti hélt uppi vörnum fyrir leynilegum persónunjósnum þarlendra yfirvalda á blaðamannafundi á föstudaginn og sagði þær nauðsynlegar til að tryggja öryggi Bandaríkjanna. Obama sagði persónunjósnirnar „lítilvægt inngrip" í friðhelgi einkalífsins sem væri nauðsynlegt enda væri að öðrum kosti ekki hægt að tryggja öryggi í landinu. Njósnirnar eru hluti af verkefni sem nefnist PRISM sem er ætlað að gera stjórnvöldum kleift að safna upplýsingum um samskipti einstaklinga á netinu á leynilegan hátt. „Það er enginn að hlusta á símtölin ykkar, það er ekki tilgangurinn með verkefninu," sagði Obama við blaðamenn á föstudaginn. Obama benti jafnframt á að þarlendir dómarar fylgdust með verkefninu og verkefnið hefði verið samþykkt af bandaríska þinginu. Obama telur að með verkefnini hafi nauðsynlegu jafnvægi öryggis og friðhelgi nú verið náð og sagði „þú getur ekki verið 100% öruggur og á sama tíma notið 100% friðhelgi og engins óhagræðis."Erfið mál safnast í kringum Obama Hneykslið kom upp fyrr í vikunni en dómskjölum sem hafði verið lekið sýna að Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) hefur kerfisbundið safnað tölvupóstum, Facebook-samtölum, skráarskiptum, myndum og öðrum gögnum notenda á samfélagsmiðlum á leynilegan hátt. Hneykslið er eitt af röð annarra hneyksla sem hafa komið upp í stjórnartíð Obama, en fyrir skemmstu kom í ljós að bandarísk skattayfirvöld (IRS) hafa um árabil veitt ýmsum samtökum sem hafa mælt fyrir skattalækkunum eða minnkun ríkisvaldsins sérstaklega íþyngjandi meðferðir. Þá hefur Obama ekki staðið við loforð sín um að loka hinum umdeildu Guantanamo fangabúðum auk þess sem hann hefur gengið mun harðar fram en forverar sínir gegn þeim sem viðhalda ekki trúnaði gagnvart þarlendum yfirvöldum.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira