Mandela enn í lífshættu Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. júlí 2013 07:15 Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að sjúkrahúsinu í Pretoríu þar sem Nelson Mandela liggur undanfarna daga og vikur til að votta Mandela virðingu sína. Nordicphotos/AFP
Stjórnvöld í Suður-Afríku segja ekkert hæft í vangaveltum um að Nelson Mandela sé í dauðadái. Dómskjöl þess efnis, sem birtust í fjölmiðlum nú í vikunni, vísa til ástands hans eins og það var fimmtudaginn 27. júní. Bæði Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, og Denis Goldberg, náinn vinur Mandela, hafa heimsótt hann á sjúkrahúsið í Pretoríu síðan þá og segja hann hafa náð sér töluvert á strik. Hann hafi verið með meðvitund og sýnt viðbrögð. Um tíma hafi læknar talið rétt að slökkva á tækjabúnaði sem heldur honum á lífi en ákveðið hafi verið að gera það ekki. „Það eru engin merki um almenna líffærabilun og þess vegna mæla þeir ekki með því að taka vélina úr sambandi því það eru allar líkur á því að heilsa hans muni skána,“ hafði Goldberg eftir Graca Mandela, eiginkonu Nelsons. Mandela er engu að síður þungt haldinn og talinn í lífshættu, þótt ástand hans sé sagt vera stöðugt. Dómsskjölin voru birt í tengslum við dómsúrskurð í deilu fjölskyldu Mandela um jarðneskar leifar þriggja barna hans, sem nú hafa verið grafin á ný í þorpinu Qunu, þar sem Mandela ólst upp. Einn sonarsona hans, Mandla Mandela, hafði grafið beinin upp fyrir tveimur árum og flutt þau annað. Desmund Tutu, fyrrverandi erkibiskup í Suður-Afríku og samstarfsmaður Mandela í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni, sagði þessa fjölskyldudeilu ekki sæmandi og bað fólk um að láta allar illdeilur vera. „Þetta er næstum því eins og að hrækja í andlitið á Mandela,“ sagði Tutu í gær. „Þjáning ykkar núna er þjáning þjóðarinnar, og alls heimsins. Við viljum faðma ykkur að okkur, styðja ykkur og láta ást okkar á Mandela skína í gegnum ykkur. Megum við vinsamlegast láta það eiga sig að flekka nafn hans.“
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira