29 nemendur brenndir lifandi í Nígeríu Jóhannes Stefánsson skrifar 6. júlí 2013 18:23 Herská samtök íslamskra öfgahópa leika lausum hala um svæðið og veigra sér ekki við að myrða börn. AFP
Herskáir íslamistar réðust inn í heimavistarskóla í Potiskum í Nígeríu þar sem þeir myrtu 29 nemendur og einn kennara. Sumir nemendanna voru brenndir lifandi í árásinni samkvæmt þeim sem lifðu hana af. Foreldrar grétu úr örvæntingu þegar þeir reyndu að bera kennsl á lík þeirra sem brunnu. Bóndinn Malam Abdullahi fann lík tveggja sona sinna, annar tíu ára sem hafði verið skotinn í bakið þegar hann reyndi að flýja og hinn tólf ára sem var skotinn í brjóstið. „Ég mun taka hina syni mína úr skóla," sagði Abdullahi við AP þegar hann stóð yfir líkunum og grét. Hann sagðist eiga þrjú yngri börn í öðrum skóla í nágrenninu. „Þetta er ekki öruggt," sagði hann. „Það eru byssumenn að ráðast á skólana og það er enginn að vernda nemendurna þrátt fyrir nærveru hermanna." Árásarmennirnir eru taldir vera úr Boko Haram sértrúarflokknum, en nafnið þýðir „vestræn menntun eru helgispjöll." Einn þeirra sem lifði árásina af er hinn 15 ára gamli Musa Hassan. „Við vorum sofandi þegar við heyrðum skothvelli. Þegar ég vaknaði var einhver sem miðaði byssu á mig." Hann brá hendinni fyrir sig í sjálfsvörn en við það skaut árásarmaðurinn úr byssunni með þeim afleiðingum að Hassan missti fjóra fingur. „Þeir brenndu öll börnin lifandi," sagði hann. Hann sagði að fjöldi barna úr skólanum hafi náð að flýja inn í skóginn undan árásarmönnunum og hafa ekki fundist síðan. Boko Haram og aðrir múslimskir öfgahópar hafa brennt fjölda skóla í norðausturhluta Nígeríu síðasta árið. Þessir hópar hafa í auknum mæli gert óbreytta borgara, heilbrigðisstarfsmenn, kennara og starfsmenn hins opinbera að fórnarlömbum sínum í árásum á svæðinu. Þetta kemur fram á vef NBC News.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira