Lifði af 300 metra fall - "Ég hélt að ég væri að fara deyja" Boði Logason skrifar 21. maí 2013 14:30 Ég tel mig vera ótrúlega heppinn að vera á lífi en ég ætla að halda áfram að stökkva.,“ segir hinn tuttugu og fimm ára Breti Matthew Gough. „
Þegar ég lenti og á jörðinni og áttaði mig á því að ég væri á lífi var ég í losti,“ segir fallhlífastökkvarinn Matthew Gough sem lifði af rúmlega 300 metra fall á Ítalíu um helgina. Gough hefur síðustu vikur og mánuði ferðast um heiminn ásamt félögum sínum þar sem þeir hafa stundað jaðaríþróttir, þar á meðal fallhlífastökk og „base jump“. Í tæplega tvö hundruð stökkum um ævina hefur hann aldrei átt í vandræðum með fallhlífina þar til við Garda stöðuvatnið í norðurhluta Ítalíu á dögunum. Stuttu eftir að hann hafði stokkið fram af klettabrún áttaði hann sig á því að fallhlífin hafði flækst. Hann féll því til jarðar meðfram klettinum á 65 kílómetra hraða. „Þegar ég undirbjó stökkið þá leið mér mjög vel. Þegar ég var búinn að stökkva gekk allt eins og í sögu og ég ætlaði að opna fallhlífina en hún flæktist. Ég náði ekki að laga hana, ég gerði mitt besta til að forðast klettinn en ég hafði hvorki tíma né pláss til þess. Þegar ég lenti á klettinum í fyrsta skiptið fór ég að snúast sem gerði mér mjög erfitt fyrir, fallhlífin flæktist enn meira og ég rakst í sífellu á klettinn,“ segir Gough. „Ég reyndi að hugsa hvað ég gæti gert, en það eina sem kom upp í hugann var að ég yrði að halda mér á lífi. Ég vissi að síðasti áreksturinn kæmi fljótlega og ég vissi að þegar ég myndi lenda á jörðinni væri ég afar slæmum málum. Ég reyndi að koma mér sem lengst frá klettinum, því ég vissi ekki hvort ég myndi lenda á jörðinni eða í vatninu.“ „Ég hélt að ég væri tvífótbrotinn eftir nokkra árekstra við klettinn svo ég vildi helst ekki lenda í vatninu, auk þess sem ég er ósyntur,“ segir hann. Eina sem hann hafi gert var að öskra á hjálp. „Mér leið eins og ég væri skylmingarþræll og væri að berjast við tíu vopnaða menn, og það eina sem ég hefði væri skeið til að berjast með.“ „Þegar ég nálgaðist jörðina var ég alveg viss um að ég væri að fara deyja,“ segir Gough. Hann lenti svo á jörðinni og lifði fallið af. „Ég hef séð svona hluti á myndböndum og trúði ekki að þetta væri að gerast fyrir mig. Ég var í losti.“ „Ég tel mig vera ótrúlega heppinn að vera á lífi en ég ætla að halda áfram að stökkva. Foreldrar mínir vilja að ég hætti að stökkva eftir þetta, en ég átta mig á hættunni og vil ekki fá neina samúð, hvorki frá þeim né öðrum,“ segir þessi kokhrausti ofuhugi að lokum.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira