Sjávarútvegsráðherra Færeyja: "Fáheyrt í samskiptum siðaðra þjóða!" Þorgils Jónsson skrifar 31. júlí 2013 13:06 Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, er afar ósáttur við ákvörðun ESB um að beita þá refsiaðgerðum í deilu um síldveiðar.
Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, fordæmir refsiaðgerðir ESB vegna síldveiða Færeyinga. „Ég skil ekki að þeir skuli koma fram með þessum hætti og beita refsiaðgerðum gegn Færeyjum í stað þess að semja um málið við okkur og hin strandríkin,“ segir hann í samtali við Politiken. „Það að beita refsiaðgerðum tel ég fáheyrt milli siðaðra þjóða og stuðlar ekki að því að leysa málið með skiptingu síldarkvóta milli strandríkjanna.“ Aðildarríki ESB ákváðu í dag að grípa til refsiaðgerða í málinu, en deila hefur staðið um einhliða ákvörðun Færeyinga á aflaheimildum úr norsk-íslenska síldarstofninum. Aðgerðirnar fela í sér bann við því að landa síld- eða makrílafurðum frá Færeyjum í ESB-löndum, þar á meðal Danmörku, sem á í ríkjasambandi við Færeyjar. Aðgerðirnar munu þó ekki koma til fyrr en eftir að þær hafa verið útfærðar nánar. Mette Gjerskov, matvælaráðherra Dana, lýsti því yfir fyrr í dag að hún væri afar ósátt við þessa ákvörðun ESB sem var tekin með auknum meirihluta á vettvangi aðildarríkjanna 28. Alþjóðahafrannsóknarráðið hefur lagt til að 619.00 tonn af síld verði veidd úr stofninum og gáfu Færeyingar sér einhliða kvóta upp á 105.000 tonn, sem nemur sautján prósentum af ráðlagðri heildarupphæð. Vestergaard segir við Politiken að stjórnvöld í Færeyjum muni íhuga næstu skref í málinu, meðal annars hvort að aðgerðirnar verði kærðar til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) eða Alþjóðlega hafréttardómstólsins. „Það er ýmislegt sem við getum gert, en við verðum fyrst að sjá hvernig aðgerðirnar verða endanlega útfærðar,“ segir hann.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Sjá meira