Fótboltinn er í vanda Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. febrúar 2013 07:00 Samsett mynd/Sylvía
Evrópska lögreglan, Europol, upplýsti í gær að ítarleg rannsókn hennar á hagræðingu úrslita í knattspyrnuleikjum hefði leitt í ljós að svindlað hefði verið í 680 leikjum. Europol óttast að þetta sé aðeins toppurinn á ísjakanum. 380 grunsamlegir leikir sem voru rannsakaðir fóru fram í Evrópu og hinir 300 í öðrum heimshlutum. Um 700 leikir í 30 löndum voru skoðaðir. Europol segir að einn leikur í Meistaradeildinni sé á meðal þeirra leikja þar sem svindlað hafi verið. Sá leikur fór fram á Englandi á síðustu þremur til fjórum árum en meira vildi Europol ekki segja í bili um þann leik. Rannsókn leiddi líka í ljós að úrslitum hefði verið hagrætt í leikjum á HM og EM. Í Þýskalandi veðjuðu glæpamenn 14 milljónum punda á leiki sem þeir vissu hvernig myndu fara. Það eru rúmlega 2,7 milljarðar íslenskra króna. Græddu þeir á því 6,9 milljónir punda eða rúmlega 1,3 milljarð íslenskra króna. 350 milljónum var varið í að múta réttum aðilum í þessum leikjum. Rannsókn Europol hefur staðið yfir í eitt og hálft ár. Þar kemur í ljós að þessu svindli er stýrt af skipulögðum glæpasamtökum í Asíu. Þau vinna svo með glæpasamtökum í Evrópu. 425 einstaklingar liggja undir grun í þessum umfangsmikla máli og þegar er búið að handtaka fimmtíu. Áttatíu húsleitir hafa einnig verið gerðar vegna málsins. „Þetta er langstærsta rannsókn á svindli í evrópskum fótbolta sem gerð hefur verið. Hún hefur leitt í ljós risastórt vandamál í boltanum," sagði Rob Wainwright, yfirmaður Europol. Wainwright greindi aðeins frá nákvæmum upphæðum í Þýskalandi og sagði svo að hæsta greiðslan hefði farið til manns í Austurríki. Hún hljóðaði upp á rúmar 24 milljónir króna. Baráttan gegn svindli í fótboltanum er rétt að byrja. Flest mál sem hafa komið upp til þessa hafa verið í Þýskalandi. Þar er búið að handtaka fjórtán manns sem hafa samtals verið dæmdir til 39 ára fangelsisvistar. Einnig er búið að sakfella menn fyrir svindl í Finnlandi, Ungverjalandi, Slóveníu og Austurríki.
Fótbolti Mest lesið Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fleiri fréttir Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira