Enski boltinn

Ekki til umræðu að Keane og Donovan verði lánaðir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Donovan í leik með Galaxy.
Donovan í leik með Galaxy. Nordicphotos/Getty
Bruce Arena, þjálfari Los Angeles Galaxy, útilokar að Robbie Keane og Landon Donovan verði lánaðir til félaga í ensku úrvalsdeildinni í janúar.

Leikið er í MLS-deildinni frá mars fram í janúar. Því hafa stuttir lánssamningar oftar en einu sinni verið gerðir við leikmenn vestanhafs. Donovan og Thierry Henry eru dæmi um það.

„Þeir hafa spilað án hlés í ellefu mánuði. Þeir þurfa að hvíla sig og koma sér svo aftur til LA,“ segir Arena við BBC.

Donovan hafði verið orðaður við Everton þar sem hann hefur áður spilað.

„Okkar leikmenn fara ekki neitt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×