Stoppa í götin fyrir Evrópumótið í Svíþjóð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júní 2013 08:00 Það er alltaf stutt í brosið þegar Sif Atladóttir er annars vegar. Fréttablaðið/Stefán „
Við værum ekki íþróttamenn ef við stefndum ekki á sigur,“ segir Sif Atladóttir sem verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í Laugardalnum í dag. Andstæðingurinn er Skotland en leikurinn er sá eini sem stelpurnar okkar spila hér á landi áður en haldið verður utan. „Skotarnir eru líkamlega sterkir og líkir okkar á margan hátt,“ segir Sif sem þekkir vel til framherja þeirra sem spilaði í Svíþjóð. „Annars er það þetta hefðbundna breska. Þær eru tilbúnar í slagsmál. En við erum náttúrulega líka þekktar fyrir að sýna tennurnar og blóðið,“ segir Sif á léttu nótunum. Kvennalandsliðið hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum og því virðist lítið tilefni til bjartsýni fyrir Evrópumótið sem hefst í Svíþjóð þann 10. júlí. „Við gerum okkur alveg grein fyrir því að úrslitin hafi ekki verið sem best,“ segir Sif en minnir á að um æfingaleiki sé að ræða. „En ef það er einhver tími til þess að gera mistök er það í æfingaleikjum. Þá getur maður stoppað í götin fyrir EM.“ Miðvörðurinn segir alla tapleikina hafa verið leikgreinda í þaula og unnið í veikleikum og þeir gerðir að styrkleikum. Hún minnir einnig á að sterka leikmenn hafi vantað í íslenska liðið á Algarve-mótinu í mars. Þar má nefna Margréti Láru Viðarsdóttur sem er mætt í slaginn á nýjan leik. Landsleikurinn á Laugardalsvelli hefst klukkan 16.45. Ókeypis er á leikinn fyrir eldri borgara, öryrkja og börn yngri en sextán ára.
Fótbolti Tengdar fréttir EM kvenna á að vera forgangsatriði hjá Rúv "Nei, ég trúi þessu ekki. Ég trúi ekki því sem þú ert að segja mér," voru viðbrögð Sifjar Atladóttur þegar hún heyrði að ekki lægi ljóst fyrir hvort Evrópumót kvennalandsliða yrði í beinni útsendingu í sjónvarpi í sumar. 31. maí 2013 14:23 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Sjá meira
EM kvenna á að vera forgangsatriði hjá Rúv "Nei, ég trúi þessu ekki. Ég trúi ekki því sem þú ert að segja mér," voru viðbrögð Sifjar Atladóttur þegar hún heyrði að ekki lægi ljóst fyrir hvort Evrópumót kvennalandsliða yrði í beinni útsendingu í sjónvarpi í sumar. 31. maí 2013 14:23