Súdansforseti flúinn heim frá Nígeríu Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. júlí 2013 10:30 Omar al Bashir, forseti Súdans, á leiðtogafundi í Nígeríu í gær. Mynd/AP
Omar al Bashir, forseti Súdans, er flúinn aftur heim frá Nígeríu, þar sem hann hugðist sitja leiðtogafund Afríkubandalagsins um heilbrigðismál. Al Bashir er eftirlýstur af Alþjóðasakadómstólnum fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi vegna átakanna í Darfúr-héraði. Mannréttindasamtök leituðu til dómstóla í Nígeríu í gær til að þrýsta á að þarlend stjórnvöld handtækju al Bashir og framseldu til Hollands, þar sem dómstóllinn er til húsa. Þá skoruðu mannréttindasamtök á Alþjóðasakadómstólinn að leita til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna ákvörðunar Nígeríustjórnar um að leyfa heimsókn al Bashirs til landsins. Reuben Abati, talsmaður Nígeríuforseta, sagði hins vegar að stjórn landsins hafi aldrei boðið al Bashir sérstaklega til Nígeríu á leiðtogafundinn. Hann hafi bara mætt eins og aðrir leiðtogar Afríkuríkja. Árið 2006 framseldi Nígería annan eftirlýstan stríðsglæpamann, Charles Taylor, fyrrverandi Líberíuforseta, til Alþjóðasakadómstólsins í Haag. Taylor hlaut fimmtíu ára fangelsisdóm síðastliðið vor.
Mest lesið Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira