Sjö manns létu lífið í átökum í Kaíró í nótt Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. júlí 2013 10:54 Átök í Kaíró í nótt. Mynd/AP
William Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin styðji hvorki stjórn né stjórnarandstöðu í Egyptalandi. Þrátt fyrir það sagði hann í gær, í heimsókn sinni til Egyptlands, að eftir stjórnarbyltingu hersins fyrr í mánuðinum hafi Egyptar fengið „annað tækifæri til að koma á lýðræði.” Hörð átök brutust út í mótmælum í Kaíró í nótt og kostuðu þau sjö manns lífið. Fjöldi fólks hafði safnast saman í gær á meðan á heimsókn Burns stóð til að mótmæla nýju bráðabirgðastjórninni, sem herinn kom til valda eftir að hafa steypt Múhamed Morsi forseta af stóli. Bráðabirgðastjórnin hefur kynnt áform sín um hraða endurskoðun stjórnarskrárinnar og bæði þing- og forsetakosningar snemma á næsta ári. Stuðningsmenn Morsis sætta sig hins vegar engan veginn við þessi áform, krefjast þess að hann fái forsetaembættið á ný, og benda á að hann var kosinn í lýðræðislegum kosningum á síðasta ári. Bandaríkin krefjast þess að Morsi verði látinn laus úr stofufangelsi. Þau hafa hins vegar ekki gengið svo langt að kalla valdatöku hersins valdarán, sem hefði þýtt að fjárhagsaðstoð frá Bandaríkjunum til Egyptalands upp á 1,5 milljarð dala yrði afturkölluð þetta árið. Burns er hæst setti fulltrúi Bandaríkjanna, sem heimsótt hefur Egyptaland eftir stjórnarskiptinn. Hann átti fundi bæði með yfirmanni hersins, Abdel Fattah al Sísí, og þeim Adlí Mansúr forseta, Hasem al Beblaví forsætisráðherra. Fyrir viku létu 50 manns lífið í átökum í Kaíró.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Sjá meira