Snowden hefur sótt um tímabundið hæli í Rússlandi Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. júlí 2013 14:06 Snowden í Moskvu fyrir helgi ásamt fulltrúa Wikileaks og þýðanda. Mynd/AP
Anatólí Kútsjerena, lögmaður Edward Snowdens í Rússlandi, segir að hann hafi í morgun sent inn formlega umsókn um tímabundið hæli í Rússlandi. Bæði Wikileaks og rússnesk innflytjendayfirvöld hafa staðfest þetta. Samkvæmt rússneskum lögum ber að svara umsókninni ekki síðar en innan þriggja mánaða. Tímabundið hæli í Rússlandi gildir í eitt ár, en getur verið framlengt um ár í senn. Kútsjerena segir hann „sæta ofsóknum af hálfu bandarískra stjórvalda og óttast um bæði líf sitt og öryggi, óttast að hann geti þurft að þola pyntingar og eigi yfir höfði sér dauðarefsingu.” Þetta sagði Kútsjerena í viðtali á rússnesku sjónvarpsstöðinni Rossíja 24, að því er fram kemur í fréttaskeyti frá AP fréttastofunni. Snowden lak í fjölmiðla upplýsingum um víðtækar njósnir bandarískra stjórnvalda með bæði net- og símaskiptum fólks, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur um heim allan. Bandarísk yfirvöld vilja að hann verði framseldur til Bandaríkjanna svo hægt sé að lögsækja hann fyrir lögbrot. Fái Snowden tímabundið hæli í Rússlandi verður honum frjálst að ferðast um landið. Kútsjerena segir að hann hafi engin áform um að fara frá Rússlandi í bráðina.
Mest lesið Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira