Erlent

Konur ætla að aka bifreiðum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Þessi mynd er frá 2011 þegar konur í Sádi-Arabíu efndu síðast til ökudags í mótmælaskyni.
Þessi mynd er frá 2011 þegar konur í Sádi-Arabíu efndu síðast til ökudags í mótmælaskyni.
Konur í Sádi-Arabíu hafa ákveðið að efna til mótmæla á morgun og setjast undir stýri á bifreiðum.

Þetta hefur þeim verið stranglega bannað, en þær vonast til að varfærnar umbætur í landinu síðustu árin sýni að nú séu stjórnvöld hugsanlega tilbúin til að stíga næsta skref.

Tvö ár eru síðan konur í Sádi-Arabíu efndu síðast til ökudags í von um að hnika stjórnvöldum. Margir íhaldssömustu klerkarnir hafa hins vegar brugðist ókvæða við og hafa sumir jafnvel hvatt fólk til að áreita þær konur, sem voga sér að aka bifreið á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×