Milljónum gert að flytja Guðsteinn Bjarnason skrifar 29. júní 2013 09:00 Á annað hundrað Tíbetar hafa kveikt í sér á síðustu árum til að mótmæla ofríki Kínastjórnar. Nordicphotos/AFP
Kína Kínversk stjórnvöld hafa látið þriðjung allra Tíbeta, um tvær milljónir manna, flytja í nýtt eða endurbætt húsnæði á árunum 2006 til 2012. Auk þess hafa hundruð þúsunda hirðingja á austanverðri hásléttunni þurft að flytjast í varanlega búsetu. Fyrir lok næsta árs þurfa meira en milljón manns í viðbót að flytja í ný byggðarlög, sem skipulögð hafa verið í tengslum við skipulagsátak kínverskra stjórnvalda. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch skýra frá þessu í nýrri skýrslu, þar sem kínversk stjórnvöld eru hvatt til þess að stöðva þegar í strax alla fólksflutninga þangað til óháð sérfræðinganefnd hefur farið yfir bæði stefnu og framkvæmd þessarar stórfelldu samfélagstilraunar. Kínversk stjórnvöld segja að herferðin, sem nefnist „Byggjum nýja sósíalíska byggð“, snúist um að útvega Tíbetum betra húsnæði og bæta mannlífið. Í skýrslunni er hins vegar fullyrt að lítið tillit hafi verið tekið til réttinda íbúanna. Kínversk stjórnvöld fullyrða enn fremur að allir þeir sem hafa flutt hafi gert það af fúsum og frjálsum vilja og tekið sé fullt tillit til óska tíbetskra bænda og hirðingja. Í skýrslunni, sem er byggð meðal annars á fjölmörgum viðtölum og frásögnum, kemur hins vegar fram að Tíbetar hafi í raun ekki haft mikil áhrif á þessi áform stjórnvalda og framkvæmd þeirra. Þá hafa samtökin grandskoðað gervihnattaljósmyndir af svæðunum, þar sem hægt er að rekja breytingarnar sem orðið hafa frá eldri byggðum yfir í nýbyggingasvæði og heilu þorpin og bæina sem reist hafa verið á síðustu árum. Tíbetar hafa ekki margar leiðir til að mótmæla framkvæmdum stjórnvalda eða öðrum mannréttindabrotum sem þeir hafa verið beittir. Síðustu misserin hafa meira en hundrað Tíbetar gripið til þess ráðs að kveikja í sjálfum sér til að vekja athygli á ofríki kínverskra stjórnvalda.
Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Sjá meira