Neitar sök í kynferðisbrotamáli Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. maí 2013 20:37 Kaitlyn Hunt var handtekin þann 16. febrúar fyrir misnotkun.
Kaitlyn Hunt, átján ára gömul stúlka frá Flórída í Bandaríkjunum sem hefur verið ákærð fyrir að brjóta kynferðislega á fjórtán ára stúlku, hefur hafnað boði saksóknara um að játa á sig verknaðinn gegn vægari refsingu. Forsaga málsins er sú að foreldrar fjórtán ára kærustu Hunt kærðu hana þegar upp komst um samband stúlknanna og var hún handtekin í kjölfarið þann 16. febrúar. Í fyrstu var talið að yngri stúlkan hefði verið fimmtán ára þegar sambandið hófst en það hefur verið dregið til baka. Ef Hunt verður sakfelld fyrir brotin gæti hún átt allt að fimmtán ára fangelsisvist í vændum, en saksóknari bauð henni að játa og vera í stofufangelsi í tvö ár og á skilorði í eitt ár að því loknu. Þá hefði skilorðsfulltrúi hennar fengið aðgang að öllum upplýsingum um síma- og netnotkun Hunt. Þessu boði saksóknarans afþakkaði Hunt og er því ljóst að málið fer fyrir dómstóla. Í yfirlýsingu frá lögmanni Hunt segir að um ástarsamband hafi verið að ræða þar sem báðir aðilar voru samþykkir. Ef málið hefði komið upp 108 dögum fyrr hefði Hunt verið sautján ára og hefði ekki gerst brotleg við nein lög. Og ef málið snerist um pilt og stúlku hefði málið ekki fengið neina athygli. Áður hafði móðir Hunt sagt fjölmiðlum að foreldrar yngri stúlkunnar teldu að Hunt hefði snúið henni til samkynhneigðar. Málið hefur vakið mikla athygli vestanhafs, og hafa netverjar hópast saman í stuðningi sínum við Hunt, þar á meðal aktívistasamtökin Anonymous, sem sendu frá sér tilkynningu til yfirvalda í Flórída.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira