Umfjöllun: Svíþjóð - Ísland 4-0 | Ísland úr leik á EM Óskar Ófeigur Jónsson í Halmstad skrifar 21. júlí 2013 12:00 Mynd/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta átti ekki möguleika í sjóðandi heitt sænskt landslið í sólinni í Halmstad í dag þegar þjóðirnar mættust í átta liða úrslitum Evrópumótsins. Allt sem mátti ekki gerast í upphafi leiks gerðist og eftirleikurinn var auðveldur fyrir sænska liðið. Svíar unnu öruggan 4-0 sigur og tryggðu sér sæti í undanúrslitum EM. Frábær keppni hjá íslensku stelpununum þótt að endirinn hafi verið snubbóttur. Svíarnir skoruðu fyrsta markið eftir tvær mínútur og 40 sekúndur og voru komnar í 3-0 eftir 19 mínútna leik. Þessi draumabyrjun Svía breytti þessum sólardegi í martröð fyrir íslensku stelpurnar sem þurfu að spila næstu 70 mínútur vitandi það að leikurinn væri í raun búinn. Sænska liðið er nú búið að skora tólf mörk í síðustu þremur leikjum sínum á Evrópumótinu og þær eru til alls líklegar í keppninni um Evrópumeistaratitilinn. Litla Ísland var á stóra sviðinu í fyrsta skiptið og hreinlega númerum of litlar til að ógna einu besta kvennaliði heims á heimavelli. Leikurinn gat ekki byrjað verr. Marie Hammarström fékk að labba upp að teig og skjóta. Boltinn lá í netinu við mikinn fögnuð sænsku áhorfendanna sem bjuggust nú við markaveislu enda ekki liðnar þrjár mínútur af leiknum. Tvö sænsk mörk með fimm mínútna millibili gengi svo frá leiknum. Margrét Lára Viðarsdóttir fékk dæmda á sig aukaspyrnu upp við teig Svíana sem hún var mjög ósátt með. Svíar náðu skyndisókn og Lotta Schelin spilaði Josefine Öqvist í gegn. Það gekk allt á afturfótunum og allt datt með Svíum á þessum fyrstu nítján mínútum. Í þriðja markinu hafði fyrirgjöf frá hægri viðkomu í varnarmanni íslenska liðsins sem varð til þess að boltinn datt inn í hlaupalínu Lottu Schelin sem skoraði. Leikurinn var um leið búinn og þegar 70 mínútur voru eftir var þetta farið að snúast um það fyrir íslensku stelpurnar að bjarga stoltinu. Fjórða mark Svía kom þó ekki fyrr en eftir tæplega klukkutíma leik og þá eftir að sænska liðið hafði fyrir löngu tekið fótinn af bensíngjöfinni. Framherjarnir Kosovare Asllani og Lotta Schelin unnu vel saman og Schelin setti sitt fimmta mark í keppninni. Katrín Jónsdóttir fékk heiðursskiptingu tíu mínútum fyrir leikslok þegar hin 18 ára Glódís Perla Viggósdóttir tók stöðu hennar í miðri vörninni. Íslensku áhorfendurnar klöppuðu vel fyrir Katrínu en frábær ferill hennar með landsliðinu er nú væntanlega á enda. Tveir yngstu leikmenn liðsins voru þær tvær síðustu til að koma inn á hjá Íslandi því áður hafði Sigurður Ragnar Eyjólfsson sett Elín Mettu Jensen inn fyrir Margréti Láru Viðarsdóttur. Íslenska liðið stóð sig frábærlega í Svíþjóð og keppninnar á ekki að vera minnst fyrir þenann slæman dag. Það vissu allir að allt þurfti að ganga upp hjá íslensku stelpunum til að þær ættu roð í sterkt sænskt lið í stuði. Það kom í ljós strax eftir tæplega þriggja mínútna leik að svo yrði ekki. Stelpurnar okkar stigu samt mörg stór skref á þessu móti og þetta verður vonandi ekki í síðasta skiptið sem þær komast svona langt.
Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Orri og félagar steinlágu fyrir Atletico Madrid Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna „Þurfum að nýta yfirburðina betur“ Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína „Vorum heilt yfir sterkari aðilinn“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Mark tekið af Hákoni í góðum sigri sem kemur Lille á toppinn Brighton valtaði yfir nýliðana Júlíus sem klettur á miðjunni í mikilvægum sigri Þróttarar brutu bikarinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Sjá meira