Di Canio heldur áfram að fagna | Úrslit dagsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. apríl 2013 10:54 Nordicphotos/AFP
Sunderland vann góðan sigur á Everton og Stoke gerði stöðu QPR vonlausa með sigri á Loftus Road. Sjö leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Arsenal vann góðan 1-0 sigur á Fulham á Craven Cottage þar sem tvö rauð spjöld fóru á loft. Leikurinn var í beinni lýsingu í Boltavakt Vísis en umfjöllun má lesa hér. Úrslit og umfjöllun annarra leikja má sjá hér að neðan. QPR 0-2 Stoke Leikmannafundur í hálfleik á Loftus Road var ekki nóg hjá QPR.Nordicphotos/Getty0-1 Peter Crouch (42.) 0-2 Jonathan Walters, víti (77.) Leikmenn QPR geta byrjað að undirbúa sig fyrir lífið í Championship-deildinni á næsta tímabili. Lundúnarliðið tapaði 2-0 á heimavelli í botnslag gegn Stoke sem kom sér í góða stöðu í fallbaráttunni. Peter Crouch skoraði fyrsta mark leiksins á 42. mínútu af stuttu færi og gestirnir leiddu í hálfleik. Heimamenn voru andlausir og fengu á sig mark stundarfjórðungi fyrir leikslok. Þá skoraði Jonathan Walters úr vítaspyrnu eftir að Clint Hill braut á Crouch. Stoke hefur 37 stig og er sex stigum frá Wigan sem vermir átjánda sæti deildarinnar. QPR hefur 24 stig líkt og Reading í botnsætunum tveimur. West Brom 1-1 Newcastle Gouffran fagnar marki sínu í dag.Nordicphotos/AFP0-1 Yoan Gouffran (8.) 1-1 Billy Jones (64.) Frakkinn Yoan Gouffran kom gestunum frá Newcastle yfir strax á áttundu mínútu. Newcastle hefur átt erfitt uppdráttar undanfarnar vikur en virðast vera að rétta úr kútnum. Heimamenn jöfnuðu eftir tuttugu mínútna leik í síðari hálfleik. Þá skoraði Billy Jones en þetta var fyrsta mark sem Englendingur skorar fyrir liðið í vetur. Niðurstaðan 1-1 jafntefli sem hentar báðum liðum ágætlega þó gestirnir hefðu vafalítið þegið stigin þrjú. West Brom hefur að litlu að keppa það sem eftir lifir móts en Newcastle þarf nokkur stig í viðbót til að tryggja sæti sitt í deildinni. Sunderland 1-0 Everton Nordicphotos/Getty1-0 Stéphane Sessegnon (45+.) Heimamenn í Sunderland halda áfram að standa sig undir styrkri stjórn Paolo Di Canio. Hart var barist í fyrri hálfleik og fyrsta markið lét bíða eftir sér þar til í viðbótartíma. Everton menn töpuðu þá boltanum á eigin vallarhelmingi. Boltinn barst á Benínmanninn Stephane Sessegnon rétt utan vítateigs sem smellti boltanum neðst í fjærhornið. Tim Howard hafði hönd á bolta og var ósáttur við sjálfan sig. Everton reyndi að jafna metin í síðari hálfleik en án árangurs. Fyrir vikið minnkaði veik von liðsins um sæti í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Grannarnir í Liverpool geta minnkað mun liðanna í þrjú sig með sigri á Chelsea á morgun. West Ham 2-0 Wigan Kevin Nolan horfir á eftir boltanum í markið. Markið var þó skráð á Matt Jarvis.Nordicphotos/Getty1-0 Matt Jarvis (21.) 2-0 Kevin Nolan (80.) Wigan sótti ekki gull í greipur West Ham á Boylen Ground. Á 21. mínútu sendi Matt Jarvis fyrir markið af vinstri kanti og boltinn lak framhjá öllum og í fjærhornið. Kevin Nolan fagnaði reynar markinu eins og hann hefði snert boltann en Englendingurinn uppskar sjálfur mark tíu mínútum fyrir leikslok. West Ham siglir lygnan sjó um miðja deild en Wigan er í átjánda sæti og missti af dýrmætum stigum í dag. Norwich 2-1 ReadingGrant Holt sýnir takta á Carrow Road í dag.Nordicphotos/Getty1-0 Ryan Bennett (50.) 2-0 Elliot Bennett (52.) 2-1 Garath McCleary (72.) Norwich styrkti stöðu sína til muna í botnbaráttunni gegn lánlausu Reading liði. Nafnarnir Ryan Bennett og Elliot Bennett skoruðu keimlík mörk með tveggja mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks. Garath McCleary minnkaði muninn fyrir gestina um miðjan síðari hálfleik en nær komust þeir ekki. Reading á enn fræðilegan möguleika á að bjarga sæti sínu í deildinni en möguleikinn er þó ekki raunhæfur. Swansea 0-0 SouthamptonAda Llana taldi sig hafa skorað mark en aðstoðardómarinn veifaði flaggi sínu.Nordicphotos/GettyLiðin tvö höfðu að litlu að keppa enda eru þau í hlutlausum gír um miðja deild. Bæði lið fengu færi til að skora og komst bjargaði Maya Yoshida á marklínu fyrir gestina um miðjan síðari hálfleikinn. Markverðir liðanna Michel Vorm og Artur Boruc stóðu vaktina vel og bæði lið þokkalega sátt við uppskeru dagsins.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira