Erlent

Palestínustjórn styður egypsku bráðabirgðastjórnina

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Mahmúd Abbas forseti Palestínustjórnar og Adlí Mansúr forsætisráðherra egypsku bráðabirgðastjórnarinnar hittust í Kaíró í dag.
Mahmúd Abbas forseti Palestínustjórnar og Adlí Mansúr forsætisráðherra egypsku bráðabirgðastjórnarinnar hittust í Kaíró í dag. Mynd/AP
Mahmúd Abbas, forseti Palestínustjórnar, hélt í dag til Egyptalands á fund Adlí Mansúr, forsætisráðherra egypsku bráðabirgðastjórnarinnar.

Abbas lýsti þar yfir stuðningi við bráðabirgðastjórnina, sem egypski herinn kom til valda eftir að hafa steypt Múhamed Morsí af stóli í byrjun júlí.

Átök hersins og íslamista í Egyptalandi endurspeglast í klofningi Palestínumanna, því Hamas-samtökin, sem fara með völdin á Gasaströnd, eru systursamtök Bræðralags múslima, samtaka Morsí forseta.

Eftir að Morsí var steypt af stóli hafa egypsk stjórnvöld takmarkað umferð um landamæri Egyptalands og Gasasvæðisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×