Hyggjast stunda líffærabúskap Jóhannes Stefánsson skrifar 21. júní 2013 15:15 Japanskir vísindamenn hyggjast rækta mennsk líffæri í líkömum svína.
Japanskir vísindamenn hafa fengið meðmæli frá nefnd á vegum hins opinbera um að heimila rannsóknir á ræktun mannalíffæra í dýrum. Nefndin er skipuð af vísindamönnum og lögfræðingum sem hafa gefið út reglur þar að lútandi, en ræktunin er liður í stofnfrumurannsóknum Japana. Japanir eru nokkuð frjálslyndir þegar kemur að stofnfrumurannsóknum því svipaðar hugmyndir hafa ekki hlotið brautargengi í öðrum löndum. Hugmyndin er sú að koma fyrir mennskum stofnfrumum inn í fósturvísi dýrsins, en svín verða að öllum líkindum fyrir valinu. Við það verður til einhverskonar blendings-fósturvísir sem svo verður komið fyrir í kviðarholi dýrsins. Fósturvísirinn mun að því búnu vaxa með dýrinu og að endingu verða að heilbrigðu, mennsku líffæri á borð við nýra eða hjarta. Þegar dýrinu er svo slátrað er hægt að ná í líffærið sem fer svo í mennskan líffæraþega sem þarfnast líffærisins. „Þessi meðbyr er mikilvægt skref fram á við og það hefur tekið okkur þrjú ár að fá þessu framgengt," sagði prófessor Hiromitsu Nakauchi við Háskólann í Tókýó í samtali við Daily Telegraph. Teymi Nakauchi hefur þegar tekist að koma fyrir stofnfrumum rotta í fósturvísa músa sem hefur verið erfðabreytt. Eins og sakir standa er japönsku vísindamönnunum heimilt að búa til blendings-fósturvísa á rannsóknarstofum þar sem þeir mega verða allt að 14 daga gamlir. Næsta skrefið í ferlinu, að koma fósturvísunum fyrir í kviðarholi dýrs, er ennþá bannað. Nakauchi vonast til þess að því verði breytt á næstunni og að fyrstu líffærin verði tilbúin til notkunar innan fimm ára, enda telja menn að tæknin sé langt á veg komin. Fyrsta líffærið sem verður prófað að rækta verður líklegast bris. Frá þessu er sagt á vef Telegraph.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Sjá meira