Valdaafsal í Katar, en litlar breytingar Þorgils Jónsson skrifar 25. júní 2013 13:00 Sjeik Tamim bin Hamad Al Thani tók við sem emír í Katar, eftir að faðir hans afsalaði sér völdum í dag. NordicPhotos/AFP
Emírinn í Katar afsalaði sér formlega völdum til sonar síns, hins 33ja ára gamla Sjeik Tamim bin Hamad Al Thani í dag. Ekki er algengt að þjóðhöfðingjar við Persaflóa stígi til hliðar ótilneyddir, en talið er að Hamad bin Khalifa Al Thani, sem er 61 árs, sé við slæma heilsu og það útskýri þessa ákvörðun, án þess að nokkuð hafi verið gefið út opinberlega. Fráfarandi emír komst til valda árið 1995 eftir að hann velti föður sínum úr sessi. Þessi skipti eru þó í góðri sátt, enda stóðu þeir feðgar hlið við hlið eftir afsalið. Er auk þess talið að fráfarandi emír muni hafa mikið um stjórn landsins að segja bak við tjöldin, og arftakinn muni fylgja í flestu þeirri framtíðarsýn sem mótuð hefur verið síðustu ár. Sjeik Tamim bin Hamad tekur við því stjórnartaumunum í þessu smáríki,sem hefur reynt að gera sig gildandi á heimssviðinu síðustu ár, í krafti gríðarlegra auðæfa. Talið er að fjárfestingasjóður ríkisins telju im 100 milljarða Bandaríkjadala. Meðal annars tók Katar þátt í málamiðlunum í Súdan á sínum tíma og hefur talað fyrir áframhaldi á friðarviðræðum í Palestínu. Katar hefur aukinheldur stutt við bakið á uppreisnaröflum í Líbíu og Sýrlandi auk þess sem þeir eru stuðningsmenn Múslímska bræðralagsins í Egyptalandi.
Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Innlent Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Innlent Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Innlent „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Innlent Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Erlent Fleiri fréttir Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Boða hertar aðgerðir gegn afbrotaunglingum Pólland ekki verið nær stríði frá því í seinni heimsstyrjöldinni Herinn skakkar leikinn í Katmandú Europol og Bandaríkin lýsa eftir úkraínskum tölvuþrjót Hyggjast bólusetja kóalabirni gegn klamydíu Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Standa fast á því að undirskriftin sé ekki Trumps Skipar strax nýjan forsætisráðherra Segja leiðtoga Hamas hafa lifað árásina af Kveikt í þinghúsinu og forsætisráðherrann hrökklast frá Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Á þriðja tug lífeyrisþega látinn eftir spengjuárás Rússa Ísraelar gera loftárásir á Katar Støre á vandasamt verk fyrir höndum eftir kosningasigur Svíar munu banna farsíma í grunnskólum frá næsta hausti Kosningaúrslit í Noregi: Störe fagnar sigri en Solberg mögulega á förum Mótmæla enn og þrír ráðherrar segja af sér Gefa grænt ljós á handtökur á grundvelli kynþáttar og málnotkunar Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Alþjóðakerfinu ekki viðbjargandi og þörf á aðlögun Segir danska kerfið þurfa að líta á Grænlendinga sem jafningja Opinbera bréf Trumps til Epsteins Vinstriblokkin með meirihluta í Noregi Þurfa að finna fimmta forsætisráðherrann á tveimur árum Sjá meira