Bölvun faraóanna Heimir Már Pétursson skrifar 25. júní 2013 07:34 Dularfullir atburðir eiga sér stað í Manchester en stytta af Neb-Senu hefur tekið upp á því að snúa sér.
Stytta af fornegyptanum Neb-Senu hefur tekið upp á því að snúa sér í sýningarkassa á safni í Manchester í Bretlandi, en ef fram fer sem horfir hafa safnverðir áhyggjur af því hvar styttan muni enda. Styttan er talin vera frá því 1.800 fyrir Krist. Campbell Price safnvörður greindi breska blaðinu Manchester Evening News frá því að einn daginn þegar hann kom í vinnuna hefði styttan snúið sér 180 gráður í sýningarkassanum. Þetta finnst Price furðulegt því hann sé eini maðurinn með lykla af sýningarskápnum. Hann segist hafa snúið styttunni á nýjan leik. Sett var upp myndavél til að fylgjast með styttunni sem tók mynd í hvert sinn sem hún hreyfði sig og þótt erfitt sé að greina hreyfingar hennar með því að horfa á hana berum augum, kemur berlega í ljós við skoðun mynda sem teknar eru yfir langan tíma, að styttan snýst hægt og rólega rangsælis. Styttan virðist aðeins hreyfa sig á daginn en vera kjur á nóttinni. Þessi staðreynd leiddi til þeirrar ályktunar bresks vísindamans að víbringur frá gestum safnsins leiddi til þess að styttan snérist. Þetta finnst Price hins vegar ekki sannfærandi skýring. Styttan, sem er um 25 sentimetra há, hafi verið í safninu frá árinu 1933 og hafi aldrei áður tekið upp á því að snúa sér í sýningarkassanum.
Mest lesið Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Innlent Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Innlent „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Erlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Fleiri fréttir Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Stunguárás í Tampere hvorki talin hryðjuverk né rasísk árás Sænskur glæpaforingi tekinn fastur í Tyrklandi Leiðtogar Hamas sagðir þokast nær því að samþykkja vopnahlé Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent