Vill að notkun dróna verði hætt Þorgils Jónsson skrifar 5. júní 2013 11:12 Drónar Ómannaðar flaugar Bandaríkjahers hafa reynst árangursríkar í baráttunni gegn talibönum og öðrum hópum vígamanna. Fjölmargir óbreyttir borgarar hafa hins vegar fallið í árásum dróna, sem hefur vakið mikla úlfúð. Nordicphotos/AFP
Eitt fyrsta stefnumálið sem Nawaz Sharif, nýkjörinn forsætisráðherra Pakistans, kynnti í setningarræðu sinni á þingi í morgun var að Bandaríkjamenn létu af notkun fjarstýrðra sprengjuloftfara, svokallaðra dróna, í landinu. Frá árinu 2004 hafa bandarísk yfirvöld beitt sprengjum sem varpað er úr drónum gegn vígamönnum, þar á meðal talibönum og al-Qaida, í fjallahéruðum Pakistans við landamæri Afganistans. Engar opinberar tölur eru til um mannfall vegna þessa árása, en samkvæmt mati félagasamtaka og fræðimanna sem hafa kynnt sér málið út frá fréttaflutningi hafa á milli 2.500 og 3.500 manns fallið í Pakistan í slíkum aðgerðum. Meðal hinna látnu eru 400 til 900 almennir borgarar, þar af eru allt að 200 börn. Af þeim sökum eru aðgerðirnar afar umdeildar og hafa vakið mikla reiði meðal pakistönsku þjóðarinnar, sem lítur á árásirnar sem aðför að fullveldi landsins. Eitt af stefnumálum Sharifs, sem hefur í tvígang áður gegnt embætti forsætisráðherra, fyrir nýafstaðnar kosningar var að binda enda á aðgerðir dróna. Hann gaf þó ekkert upp um hvernig hann hyggðist binda enda á aðgerðirnar, en Bandaríkin álíta þær mikilvægan þátt í baráttunni gegn vígamönnum. Þeim hefur einnig verið beitt gegn vígamönnum í Jemen, Sómalíu og Afganistan. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði meðal annars í ræðu fyrir skemmstu að notkun dróna væri „ill nauðsyn“ sem þó mætti ekki nýta í óhófi eða misnota.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira