Capello kennir óþekkum áhorfanda um hvernig fór Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2013 09:45 Kaka í leiknum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Fabio Capello, þjálfari rússneska landsliðsins, kennir óþekkum áhorfenda um að hans mönnum hafi ekki tekist að halda út á móti Brasilíu í vináttulandsleik á Stamford Bridge í gærkvöldi. Rússar voru nokkrum mínútum frá því að vinna sinn fyrsta sigur á Brasilíu síðan að Sovétríkin skiptust upp en Fred tryggði Brasilíumönnum 1-1 jafntefli á 90. mínútu leiksins en skömmu áður hafði einn af 35 þúsund áhorfendum leiksins fundið sér leið framhjá öryggisvörðum og komist inn á völlinn. Capello var ánægður með leikinn og úrslitin en taldi innáhlaup áhorfendans spilla einbeitingu leikmanna rússneska liðsins en atvikið gerðist rétt fyrir leikslok. „Ég er ánægður með hvernig við spiluðum og hvernig fór. Einu vonbrigðin eru að mínir menn misstu einbeitinguna eftir að áhorfandinn kom inn á völlinn. Það er ekki hægt á móti liði eins og Brasilíu," sagði Fabio Capello á vel sóttum blaðamannafundi eftir leikinn. Victor Faizulin kom Rússum í 1-0 þegar 17 mínútur voru til leiksloka en Fred jafnaði með sínum þriðja marki í þremur leikjum síðan að Luiz Felipe Scolari tók við. En hvað sagði Scolari þegar hann heyrði af ummælum Capello? „Þegar ég var þjálfari Portúgals og við vorum að spila við Eistland, þá hljóp mjög falleg berbrjósta kona inn á völlinn. Allir voru að horfa á hana og meira að segja ég. Þá var staðan 0-0 í leiknum en við unnum síðan 2-0. Ég veit ekki hvort þessi maður truflaði rússneska liðið en hver veit það getur alveg gerst," sagði Luiz Felipe Scolari í léttum tón.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Enski boltinn Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport „Hræddir erum við ekki“ Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Íslenski boltinn EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Fleiri fréttir Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Sjá meira