Vilja að fjöldamorðingi verði tekinn af lífi Þorgils Jónsson skrifar 18. ágúst 2013 19:03 Robert Bales bíður lífstíðarvist í fangelsi eftir að hafa játað að hafa drepið sextán óbreytta Afgana í fyrra. Nordicphotos/AFP
Aðstandendur þeirra sextán Afgönsku borgara sem féllu fyrir hendi bandaríska hermannsins Robert Bales á síðasta ári eru ævareiðir yfir því að honum skuli hlíft við dauðadómi fyrir morðin. Réttarhöld yfir Bales hefjast í Bandaríkjunum á morgun. Mál Bales vakti mikla athygli á sínum tíma enda varpaði það ljósi á það mikla vantraust sem ríkti milli afganskra borgara og bandarískra hermanna sem verið hafa í landinu frá árinu 2001. Bales hefur játað að hafa, á aðfararnótt 1. mars í fyrra, laumast í tvígang út úr herstöð sinni í Kandahar héraði og gengið hús úr húsi í tveimur nærliggjandi þorpum þar sem hann skaut fólk af handahófi, þar af níu börn og fjórar konur. Bales neitaði lengi vel að tjá sig um atburði næturinnar, en sneri við blaðinu í vor og játaði á sig sök gegn því að sleppa við dauðadóm. Það eru aðstandendur fórnarlamba hans afar ósátt við. Þetta er mannskæðasta atvik af þessu tagi sem komið hefur upp hjá bandaríska hernum frá árum Víetnamstríðsins. Bales er afar reyndur hermaður sem hafði margoft þjónað í Írak og Afganistan, en verjendur hans hafa haldið því fram að hann hafi þjáðst af áfallstreituröskun og heilaskaða þegar hann hélt í drápsförina. Vitni í fyrirtöku vegna málsins segja að Bales hafi fyllst mikilli reiði eftir að félagi hans missti fót í sprengjutilræði nokkrum dögum fyrir árásina.
Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Fleiri fréttir Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Sjá meira