Eitt ár liðið frá voðaverkunum í Aurora 20. júlí 2013 14:45 Harmleikurinn í Aurora og fjöldamorðið í grunnskólanum Sandy Hook í Connecticut nokkrum mánuðum seinna voru kveikjan að háværri umræðu um vopnalöggjöfina í Bandaríkjunum. samsett mynd
Það var á þessum degi á síðasta ári sem hinn tuttugu og fimm ára gamli James Holmes gekk inn í kvikmyndasal í smábænum Aurora í Coloradoríki í Bandaríkjunum þar sem kvikmyndin The Dark Knight Rises var sýnd, og skaut tólf manns til bana og særði sjötíu, marga alvarlega. Eftirlifendur voðaverksins komu saman á samstöðufundi í almenningsgarði í Denver í gær og minntust þeirra sem létust í árásinni. Harmleikurinn í Aurora og fjöldamorðið í grunnskólanum Sandy Hook í Connecticut nokkrum mánuðum seinna voru kveikjan að háværri umræðu um vopnalöggjöfina í Bandaríkjunum. Á fundinum í Denver í gær sameinuðust aðstandendur og eftirlifendur í kröfu sinni um bætta löggjöf og að ráðamenn beiti sér í málinu. Málið er þó afar umdeilt í Bandaríkjunum. Þannig söfnuðust um hundrað stuðningsmenn núverandi vopnalaga saman í garðinum til að hampa sínum rétti. Margir voru klæddir appelsínugulum stuttermabolum, merktir Skotvopnasamtökum Bandaríkjanna. Ofbeldisglæpir þar sem skotvopn koma við sögu eru tíðir í Bandaríkjunum. Þannig hafa rúmlega tvö þúsund og fimm hundruð manns látist í skotárásum í landinu frá áramótum. Um helgina munu íbúar í Aurora minnast þeirra sem létust í kvikmyndinahúsinu. Borgaryfirvöld hafa skipulagt viðamikla dagskrá þar sem áhersla er lögð á samstöðu, uppbyggingu, list og tónlist.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Sjá meira