Lagaskylda að heimsækja aldraða Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. júlí 2013 11:00 Eldri borgarar í Kína. Mynd/AP
Frá og með deginum í dag taka gildi ný lög í Kína sem skylda fólk til að heimsækja eða hafa reglulega samband við aldraða foreldra sína. Við brotum liggja sektir eða jafnvel fangavist. Í lögunum segir að fullorðin börn aldraðra eigi að láta sig varða andlegar þarfir foreldra sinna og "aldrei vanrækja eða lítilsvirða aldrað fólk." Í Kína er sterk hefð fyrir því að sýna öldruðum virðingu. Í þrjá áratugi hefur markaðsvæðing hins vegar sett mark sitt á þjóðfélagið í vaxandi mæli, og hraðað upplausn fjölskyldunnar. Lítið er hins vegar enn um elliheimili eða önnur úrræði fyrir aldrað fólk, sem einangrast frá fjölskyldu sinni. Nýju lögin hafa verið gagnrýnd fyrir það að erfitt geti reynst að framfylgja þeim. Stjórnvöld segja lögin hins vegar fyrst og fremst hafa verið sett til að brýna fyrir fólki að gleyma ekki öldruðum foreldrum sínum. "Það er erfitt að framfylgja þessum lögum, en ekki ómögulegt," hefur breska útvarpið BBC eftir Zhang Yan Feng, lögfræðingi í Beijing. "Ef mál fer fyrir dóm á grunni þessara laga býst ég við að niðurstaðan fáist í sátt. En ef engar sættir takast, þá getur dómstóll tæknilega séð skyldað fólk til að heimsækja foreldrana nokkrum sinnum í mánuði. Ef þessum úrskurði er ekki hlítt, þá væri hægt að sekta eða fangelsa viðkomandi."
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Sjá meira