Erlent

Musharraf laus gegn tryggingu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Pervez Musharraf.
Pervez Musharraf. Mynd/AP
Dómstóll í Islamabad samþykkti í gær að Pervez Musharraf, fyrrverandi forseti Pakistans, yrði látinn laus gegn tryggingu.

Dómstóllinn féllst á þetta með þeim rökstuðningi að engar sannanir væru fram komnar sem sýni að Musharraf hafi í raun átt aðild að árás á mosku í Islamabad árið 2007.

Harðlínuklerkur einn lét lífið í þeirri árás.

Musharraf hefur verið í stofufangelsi í meira en hálft ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×