Erlent

150 hermenn dæmdir til dauða í Bangladesh

Dómstóll í Bangladesh dæmdi í morgun að minnsta kosti hundrað og fimmtíu hermenn til dauða vegna uppreisnar sem gerð var á landamærastöð árið 2009. Rúmlega hundrað og fimmtíu hermenn til viðbótar fengu lífstíðardóma auk þess sem tugir óbreyttra borgara voru dæmdir fyrir að aðild sína að uppreisninni. Hermennirnir gerðu uppreisn til að mótmæla lélegum launum í hernum og áður en yfir lauk lágu sjötíu og fjórir í valnum, flest allir þeirra voru yfirmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×