Lokkuðu ólögráða stúlkur í hópkynlíf með áfengi Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 5. nóvember 2013 12:15 Piltarnir stæra sig af kynlífi með ólögráða drukknum stúlkum. Engin stúlka hefur viljað leggja fram kæru vegna málsins.
Hópur nýsjálenskra unglingspilta sem kallar sig „The Roast Busters“ hefur fengið stúlkur undir lögaldri til lags við sig með því að gefa þeim áfengi. Þeir lýsa aðförunum á opinni Facebook síðu sem þeir hafa haldið úti í um tvö ár. Frá þessu segir meðal annars í fréttum Daily Mail og 3news. Samtök sem berjast gegn nauðgunum segja að miðað við lýsingar af síðunni sé um nauðganir að ræða. Á síðunni lýsi strákarnir grófu ofbeldi sem þeir beita stúlkurnar. Yngstu stúlkurnar eru 13 ára gamlar. Strákarnir nafngreina þær í einhverjum tilfellum. Lögreglan hefur vitað af síðunni frá árinu 2011 en þrátt fyrir það hefur ekkert verið gert til að stöðva piltana. Stofnendur hópsins eru 17 og 18 ára í dag og búa í Auckland í Nýja-Sjálandi. Annar þeirra, Joseph Levall Parker, hefur nú verið tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglunni. Faðir hans er leikarinn Anthony Ray Parker sem hefur gert það gott í Hollywood. Hinn pilturinn er sonur lögreglumanns í Auckland. Á síðunni auglýstu piltarnir eftir fleirum til að taka þátt og hópurinn telur að minnsta kosti sex unga menn í dag. Eins og staðan er í dag verða piltarnir ekki ákærðir. Rannsóknarlögreglumaðurinn Bruce Scott segir að þar sem engin stúlknanna sé nógu hugrökk til að greina frá málinu með formlegum hætti sé ekkert hægt að aðhafast. Hann segir að þær upplýsingar sem komi fram á Facebooksíðu drengjanna dugi ekki til sakfellingar. Carol Beaumont, talsmaður kvennasamtaka í Nýja Sjálandi, segir það sæta furðu að lögreglan hafi ekkert gert í málinu þrátt fyrir að hafa vitað af síðunni allan þennan tíma. Á síðunni hafa piltarnir lýst því sem þeir gera við stúlkurnar og sett inn myndbönd. Síðunni virðist hafa verið lokað í gær. Á henni kom meðal annars fram frá einum piltanna að þeir tækju því sem þeir gerði mjög alvarlega, þetta væri ekkert grín. Að baki þessu lægi mikil vinna enda væri ekki auðvelt að ná þeim fjölda stúlkna sem þeir hefðu náð. Hann sagði að þeir væru ekki að þessu ánægjunnar vegna og sagði stúlkurnar vita út í hvað þær væru að fara þegar þær hittu þá. Í samtali við fjölmiðla segir ein stúlkan að hún hafi verið svo drukkin að hún hefði í sífellu dottið út. Það væri hægt að segja að henni hefði verið nauðgað. Hún hafi stundað kynlíf með þremur strákum í einu. Systir annarrar stúlku sagði í útvarpsviðtali að hún gæti nefnt um 30 stúlkur frá Auckland sem hefðu lent í piltunum. Hún sagðist hafa farið heim til eins stráksins þegar foreldrar hans voru í burtu. Þeir hefðu verið með herbergi þar sem þeir fóru með stelpurnar inn í. Þar hafi verið blóð uppi um alla veggi og þeir hefðu farið með þrjár stelpur inn í herbergið í einu. Hér að neðan má sjá fréttatíma frá 3news í Nýja Sjálandi þar sem brot úr myndböndum af síðu piltanna eru sýnd.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira